Innlent

Túlkunin grund­vallist á lögum og sið­ferðis­sjónar­miðum

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdarstjóri Eflingar, segist vera ánægður með að auglýsingin hafi vakið athygli. Það hafi einmitt verið ætlunin.
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdarstjóri Eflingar, segist vera ánægður með að auglýsingin hafi vakið athygli. Það hafi einmitt verið ætlunin. Vísir/Vilhelm
Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, er ánægður með að gulu miðarnir séu að vekja athygli. Það hafi verið tilgangurinn með auglýsingunni.

Vísir greindi frá því í morgun að Efling hefði látið gera einblöðunga þar sem þeim tilmælum var beint til ferðamanna að velja aðra samgöngumáta en hópferðabíla vegna verkfallsins sem hefst á miðnætti.

Sjá nánar: Finnst Efling ganga æði langt með tilmælum til ferðamanna



„Við viljum bara axla ábyrgð á því að ferðamenn séu rétt upplýstir um það sem er í vændum núna á fimmtudag og föstudag,“ segir Viðar. Forsvarsmenn Eflingar ætlist til þess að hópbifreiðaakstur falli niður með þeirri undantekningu að forstjórar og æðstu yfirmenn gangi í störfin.

„Við gerum þá kröfu að okkar verkfallsboðun, sem er lögleg og hefur verið rækilega tilkynnt til allra hlutaðeigandi aðila samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, sé virt og það eru okkar skilaboð.“

Samtök atvinnulífsins og Efling eru ekki sammála um túlkun laga sem fjalla um hverjir megi ganga í störf í verkföllum. Þannig hefur það viðgengist að starfsmenn sem ekki eru í VR og Eflingu hafa gengið í störfin. Efling telur það vera verkfallsbrot.

Viðar segir að túlkun Eflingar á vinnulöggjöfinni hafi alltaf legið fyrir. Hún sé grundvölluð á lögum, hefðum, venjum og siðferðissjónarmiðum.

„Við förum með samningsumboð fyrir hópbifreiðaakstur á þessu félagssvæði og þar af leiðir að þegar við förum í verkfallsaðgerðir þá eru þær til þess að verja kjör þeirra sem þar starfa og mér finnst í fyrsta lagi siðlaust og í öðru lagi líka á skjön við vinnulöggjöfina að atvinnurekendur séu að lýsa því yfir að þeir ætli að láta einstaklinga sem eru ranglega skráðir til félags vinna vinnu eins og ekkert hafi í skorist.

Mér finnst það líka ábyrgðarlaust í ljósi þess að við erum búin að lýsa því yfir að við munum viðhafa verkfallsvörslu að þessir aðilar séu að láta þau boð út ganga til þá til að mynda væntanlega ferðamanna að þeir geti átt von á óskertri þjónustu á þessum verkfallsdögum.“


Tengdar fréttir

Finnst Efling ganga æði langt með tilmælum til ferðamanna

Þóri Garðarssyni, stjórnarformanni hjá Gray Line Iceland, finnst Efling stéttarfélag ganga æði langt með einblöðungum sem hefur verið dreift í höfuðborginni þar sem þeim tilmælum er beint til ferðamanna að velja aðra samgöngumáta en hópferðabíla vegna verkfallsins sem er á fimmtudag og föstudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×