Flutt á slysadeild eftir bruna í íbúðarhúsi í Kópavogi Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. janúar 2019 12:43 Frá vettvangi við Holtagerði í dag. Vísir/Arnar
Eldur kviknaði í íbúðarhúsi við Holtagerði í Kópavogi um hádegisbil í dag. Íbúi á efri hæð hússins var fluttur á slysadeild. Lið frá fjórum stöðvum var sent á staðinn og er enn unnið að því að ráða niðurlögum eldsins, að sögn varðstjóra. Húsið er tvær hæðir og kom eldurinn upp á efri hæðinni. Ein kona, íbúi á efri hæð, var inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði en hún var komin út þegar slökkvilið bar að garði. Konan var í kjölfarið flutt á slysadeild. Töluverðar skemmdir urðu á húsinu en þegar fréttastofa náði tali af varðstjóra var verið að rjúfa þak og rífa niður loft á efri hæðinni. Ekki var búið að slökkva eldinn klukkan 12:30 en slökkviliðsmenn telja sig hafa náð tökum á honum. Ekki er vitað um eldsupptök að svo stöddu. Þá er varðstjóra ekki kunnugt um stöðuna á neðri hæð hússins en eldurinn náði ekki að breiðast þangað út.Uppfært klukkan 14:00: Búið er að slökkva eldinn og er slökkvilið á leið af vettvangi. Þá hefur lögregla tekið við rannsókn málsins. Að sögn varðstjóra er fulltrúi frá tryggingafélaginu einnig mættur á staðinn til að meta tjónið. Talsverðar skemmdir urðu á efri hæð hússins en varðstjóra var ekki kunnugt um neitt tjón á neðri hæðinni.Rjúfa þurfti þak hússins.Vísir/Arnar
Kópavogur Slökkvilið Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Sjá meira