Uppfært klukkan 19.30: Maðurinn er fundinn.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar. Maðurinn er vinsamlegast beðinn um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.
Þeir sem þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru einnig beðnir um að hringja í lögregluna. Upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið johann@eyvindsson@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
