Aprílspá Siggu Kling – Nautið: Ert að efla þig líkamlega Sigga Kling skrifar 5. apríl 2019 09:00
Elsku Nautið mitt, eitt uppáhalds lagið mitt er Á skíðum skemmti mér með Helenu Eyjólfsdóttur, sem væri kannski hægt að breyta yfir í „að í lífinu skemmti ég mér“ því það er eins og þú sért á skautum eða skíðum svo þú þarft að sýna lipurð og hafa athyglisgáfu þína og greind á „on“ því það er lítill steinn fyrir framan þig sem þú þarft að skauta fram hjá. Segðu því frekar minna en meira og lofaðu engu sem þú getur ekki staðið við, þetta eru einu varnaðarorðin í þessari spá. Þú átt eftir að sjá það hjartað mitt að þú ert að fara inn á tímabil frelsis, vera frjáls í eigin skinni, frjáls fyrir slúðri og vera frjáls í hjartanu þínu. Þú ert svo ótrúlega mikill hugsuður og ert alltaf að velta fyrir þér möguleikunum sem lífið getur gefið þér og vorið landar þér sigri og fögnuði. Þú ert að efla þig líkamlega, átt eftir að hafa miklu meira úthald og taka sterkar ákvarðanir þó svörin komi ekki í ljós fyrr en vorar. Þú átt eftir að koma svo mörgu góðu til leiðar og það hlutverk sem þér er ætlað mun senda blessun til margra, því þegar þú leyfir hjartanu að ráða ferðinni þá býr gæfan heima hjá þér og í þér. Þú átt það til að detta niður í svartnætti en það er bara stutta stund í einu og er partur af kokteilnum, gefðu þér bara andrými þótt þú sért ekki alltaf að springa úr bjartsýni, því innra með þér býr þessi rosalegi kraftur ef þú gefur snillingnum í þér tækifæri. Hvort sem þú ert að spá í ástina eða nýjar persónulegar áskoranir, þá er svarið að með hugrekki opnast heimurinn.Knús og kossar, þín Sigga KlingFræg Naut: Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur, Davíð Rúnar Bjarnason, boxari, Þórunn Pálsdóttir fasteignasali, Silla Páls, ljósmyndari og listamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hræðilegir dagar í Partylandi Lífið samstarf Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Hvað veistu um… pitsur? Lífið Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Lífið Stjörnulífið: Laumugifting í helli Lífið Fleiri fréttir Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Sjá meira