
Ísframleiðslan hjá Skúbb hefst klukkan 7 á morgnana og búinn er til ís fyrir daginn. Í borðinu eru sextán bragðtegundir og mega viðskiptavinir eiga von á skemmtilegum tilraunum af hálfu ísgerðarmannsins.
„Í borðinu eru tíu til tólf fastar bragðtegundir sem margir viðskiptavinir okkar þekkja og svo leikum við okkur með nokkrar og prófum eitthvað nýtt,“ segir Jón Gunnar. „Við gerum oft eitthvað árstíðabundið og til dæmis búum við til piparkökuís fyrir jólin sem hefur rokið út. Kaffiísinn okkar nýtur mikilla vinsælda en í hann eru notaðar ekta kaffibaunir og þá er saltkaramelluísinn algjör klassík. Við búum líka til veganís úr kókosmjólk og vatni og þá má nefna að vöffluformin á Skúbb eru bökuð á staðnum og eru vegan.“

Skúbb er einnig með ístertur sem hafa notið mikilla vinsælda. „Við erum að bjóða upp á handgerðar ístertur úr skúbb ísnum sem hafa algjörlega slegið í gegn. Þær eru hugsaðar fyrir 6-8 manns og eru algjört lostæti. Við bjóðum upp á þrjár tegundir, jarðaberja og vanillu, súkkulaði með mjólkursúkkulaðihjúp og klassíska saltkaramelluístertu.“

Hægt er að sérpanta ís frá Skúbb og er sú þjónusta vinsæl hjá veitingastöðum og fyrirtækjum en einnig geta einstaklingar fengið sérframleiddan ís í 5 lítra boxum.
„Það er sniðugt í stærri teiti, jólaveislur, afmæli eða fermingar. Það er mjög skemmtilegt að þróa sérstakan ís eftir skemmtilegum hugmyndum eða fá klassískar tegundir sem allir elska. Önnur vinsæl þjónusta hjá Skúbb er ísvagninn okkar en við mætum með hann til fyrirtækja, á árshátíðir, jólahlaðborð og fleiri viðburði. Það eru 4 tegundir í vagninum sem viðskiptavinurinn velur saman eða við setjum saman vinsælar tegundir. Ísvagninn slær alltaf í gegn hvar sem hann kemur og við getum mettað allt upp í 600 manns.“ segir Jón Gunnar.

Skúbb er líka á facebook og Instagram
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Skúbb.