„Hafði ekki tækifæri til að fyrirgefa, því hún bara dó“ Stefán Árni Pálsson skrifar 26. október 2018 10:30 Valgeir Skagfjörð sagði sögu sína í Íslandi í dag í gær.
Valgeir Skagfjörð er einn af þessum listamönnum sem alltaf heldur í jákvæðnina og gefst aldrei upp sama hversu erfitt sem lífið getur stundum verið. Valgeir átti erfiða æsku þar sem móðir hans var bæði mikill alkóhólisti og ofbeldisfull og með undirliggjandi geðsjúkdóm. Faðir hans bjó í Bretlandi og sinnti honum aldrei. Valgeir bjó einnig við ofbeldi af stjúpföður sínum. Vala Matt sótti Valgeir heim í Íslandi í dag í gærkvöldi þar sem hann sagði henni brot af sinni sögu og hvernig fyrirgefningin er lykilatriði til þess að verða hamingjusamur. „Það er hægt að segja frá þessu á tvennan hátt. Einfalda setningin er að ég ólst upp í partýi. Hin setningin er að ég bjó við vanrækslu,“ segir Valgeir í samtali við Völu Matt.Valgeir bjó við mikið ofbeldi sem barn.„Móðir mín var alkahólisti með undirliggjandi geðsjúkdóm og persónuraskanir sem var erfitt að búa við en maður lærði samt að lifa með því. Börn hafa eiginleika til þess að lifa af hörmungar en þetta er einhverskonar áfallastreyturöskun sem ég verð fyrir sem hefur fylgt mér lengi. Þú lærir að beita þig einhverskonar innri heilaþvotti sem gengur út að það að þú trúir því að þetta sé eðlilegt ástand.“ Hann segist ekki hafa í annað hús að sækja í og ekkert val um það hvernig líf hans var. „Ég var háður fullorðna fólkinu og svo bregst fullorðna fólkið, og ég er bara sjálfala drengur að berjast við það að halda heimili með yngri systkinum mínum. Mamma var mjög slæm og mjög veik. Hún var mjög ung þegar hún átti mig, hún var átján ára þegar hún eignast mig. Við jörðuðum hana árið 1997 og okkar systkinunum taldist til þegar við vorum að taka þetta saman að hún hefði átt átta menn.“ Valgeir segist hafa þurft að fyrirgefa einum af mörgum stjúpföður sínum ofbeldið.Hér má sjá Valgeir með móður sinni á sínum tíma.„Ég skrifaði honum bréf einhvertímann sem hann fær aldrei, það var bara fyrir mig. Það er fullorðinn maður og þú ert sjö átta ára og þér er fleygt um íbúðina og það er sparkað í þig eins og þú sért kartöflupoki, þú ert laminn til blóðs og háttaður upp í rúm. Þú ert látinn borða kvöldmatinn þinn ofan í baðkari í regngalla út af því að þú sullaðir á þig. Það voru svona uppeldisaðferðir sem átti að nota á mig, en ég var bara venjulegur strákur.“ Hann segir að líf móður hennar hafi alltaf gengið út á það að finna sér einhverja menn til að sjá sér fyrir lifibrauði. „Ég þurfti stundum að hugsa um hana, það er stundum hlutverk alkabarnanna. Það var mitt hlutverk að hjúkra henni þegar hún var timbruð of færa henni afréttara og halda um ennið á henni þegar hún var að kasta upp. Stundum var ekkert til og við vorum einfaldlega gerð út til að ræna kardímommudroppum og það er eitthvað sem varð að gera, því það var ekki hægt að hafa hana í þessu ástandi.“Tók ákvörðun um að vera hamingjusamur og frjáls Valgeir segist hafa orðið að finna í sjálfum sér undanfarin ár og það til að gera upp fyrri tíma. „Ég hætti að drekka í kringum 1995 og í þeirri vinnslu er ég að hreinsa upp lífið og fór meðal annars til sálfræðing sem sýndi mér það hvernig móðir mín hafði reynt að stjórna lífi mínu, því ég var að burðast með skömm og sektarkennd. Þá tók ég ákvörðun, hvort ég ætlaði að vera gramur, bitur og reiður eða hamingjusamur og frjáls. Hann fann það að ég þurfti að fyrirgefa henni. Ég hafði ekki tækifæri til að fyrirgefa, því hún bara dó og ég gat ekki talað við hana. Ég þurfti bara að gera það á annan hátt og það gerðist bara með bæn og ég skrifaði upp lista á blað, fór upp á fjall með þetta og reif blaðið upp í vindinn.“ Þá hafi hann verið laus undan skömminni, sektarkenndinni og sjálfásökununum en hér að neðan má sjá innslagið síðan í gær.
Mest lesið Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Lífið Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Lífið Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Lífið „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Lífið Djammaði með feðgunum Kára og Agli Lífið Ólafur Darri verður Þór Bíó og sjónvarp Sækir um skilnað frá Schneider Bíó og sjónvarp Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Tónlist Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry Lífið Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Lífið Fleiri fréttir Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“