Fyrir tuttugu árum var...? Stefán Þór Hjartarson skrifar 28. febrúar 2018 08:00 Kio Briggs var mikið í fréttum árið 1998. Hann var líka rosalega mikið á djamminu.
Eins og hefur verið bent á hér á þessum síðum stefnir framtíðin í að verða algjörlega hræðileg og þá er ágætt að hverfa aftur til fortíðar – nærtækt til að mynda að skreppa ein 20 ár aftur í tímann til ársins 1998 en vísindamenn hafa reiknað út að einmitt þá hafi mannkynið náð sínu hæsta flugi, en flugið hefur sífellt farið lækkandi síðan.Stærstu málin Erlendis var stærsta málið og jafnframt eitt skemmtilegasta fréttamál allra tíma Clinton/Lewinsky-hneykslið en það komst í fréttir þetta stórkostlega ár. Bill Clinton, þáverandi Bandaríkjaforseti, hafði átt í sambandi við lærlinginn Monicu Lewinsky frá árinu 1995 – en þetta vitið þið líklega. Grínarar og glensarar þessa tíma höfðu nóg að gera við að semja brandara um málið og raunar varð þetta þeim ótæmandi uppspretta efniviðar í fleiri ár eftir skandalinn. Stærsta málið hér heima á Íslandi var vafalaust hið ódauðlega Kio Briggs mál. Maður nokkur, Kio Briggs að nafni, var handtekinn í Leifsstöð með 2.000 e-töflur í farangri sínum þann 1. september. Kio lýsti yfir sakleysi sínu og skiptust landsmenn í tvo hópa – þá sem trúðu frásögn hans og hina sem gáfu lítið fyrir þessar útskýringar. Svo fór að Kio var sýknaður og í kjölfarið varð hann algjört djamm-„legend“ í Reykjavík. Svo yfirgaf hann landið og var stuttu síðar handtekinn í Danmörku með e-töflur í fórum sínum.Annað markvert sem gerðist hér á landi þetta ár var það að um sumarið 1998 voru Hvalfjarðargöngin opnuð, skemmtistaðurinn Tunglið brann til kaldra kola og Listaháskóli Íslands var stofnaður og hóf að dæla út listaspírum.Einnig komu fram á sjónarsviðið tvær mikilvirkar hljómsveitir í sveitaballasenunni en sveitirnar Írafár og Í svörtum fötum voru báðar stofnaðar þetta blessaða ár.Tækniár Ýmislegt markvert gerðist í heimi tækninnar árið 1998 – fyrir það fyrsta kom stýrikerfið Windows 98 út, að margra mati betrungur Windows 95 stýrikerfisins byltingarkennda. Það má segja að Windows 98 hafi verið hálfgert skref í átt að Windows 2000, besta Windows-stýrikerfi allra tíma að mati margra. Hitt sem gerðist árið 1998 var að Google var stofnað, en í dag er það eitt stærsta fyrirtæki heims. Í raun hefur þetta fyrirtæki breytt heiminum á margan hátt – og nú er svo komið að það hefur skotið Microsoft ref fyrir rass, en það síðarnefnda var árið 1998 eitt stærsta fyrirtæki heims.Á þessum tíma voru MP3-spilarar rétt ókomnir á markað og ferðageislaspilarar enn í mikilli notkun. Þetta var því þó nokkurt tímamótaár og þarna fór að fjara undan geisladisknum og þar með tónlistarsölu. iMac-tölvan kom á markað auk Dreamcast-tölvunnar en hún var upphaf sjöttu kynslóðar leikjatölva, eða átti að vera það – en Dreamcast var alger skellur og Sega hætti í framhaldinu að framleiða leikjatölvur.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Lífið „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Lífið Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Lífið Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Lífið Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Lífið Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Lífið Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Tíska og hönnun Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Lífið Tróð upp í Norræna partýinu Lífið Bernard Hill er látinn Lífið Fleiri fréttir Gylfi og Alexandra eiga von á barni Bernard Hill er látinn Krakkatían: Kolbeinn kafteinn, langspil og hvolpar Hvernig bíla eiga frambjóðendur? Bílablinda, lögregluleyfi og draumur um Volvo Vinskapurinn og gleðin staðið upp úr Mörg hundruð manns á opnun kosningamiðstöðvar Katrínar Tróð upp í Norræna partýinu Gaman að geta grætt fólk á góðan hátt Bakaríið í beinni Fréttatía vikunnar: Lögreglan, körfubolti og frambjóðendur Fjórar dýrindis diskósúpur úr hráefnum sem annars hefði verið hent Kynfræðingur selur slotið á landsbyggðinni Bakaríið í beinni Sérfræðingar rýna í Bakgarðshlaupið: „Endamarkið er í hausnum á þér“ „Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“ Grænmetisæta í 38 ár en ekki lengur Una Torfadóttir með sína útgáfu af Bubbalagi frá 1998 Hyggjast renna fimmtíu íslenskum lögum inn í karaokívélarnar Magnús Árni selur sögufrægt hús með kastalaturni „Veit ekkert hvernig þessi ferð endar, en ég er samt mjög ánægð með að hafa lagt af stað“ Ekki með mönnum á hennar aldri því „þeir eru allir látnir“ Minningar um líf sem er að hverfa Lolla í Litlu hryllingsbúðinni:„Þetta er auðvitað geggjað hlutverk“ Jón Daði og María Ósk eignuðust dreng Tíu ár og aukin meðvitund í bransanum Hvetur fólk til þess að leika sér Sígó eftir hvern hring og undir lokin þurfti að lyfta Mari upp úr stólnum en hún hljóp af stað Annie Mist og Frederik eignuðust dreng Hljómborðsleikari ELO fallinn frá Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni Sjá meira