Heaton íhugar að yfirgefa Burnley Smári Jökull Jónsson skrifar 15. október 2018 08:00 Heaton meiddist í upphafi síðustu leiktíðar. Vísir/Getty
Tom Heaton, liðsfélagi Jóhanns Bergs Guðmundssonar hjá Burnley, viðurkennir að hann gæti þurft að yfirgefa félagið þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar en hann hefur þurft að sitja á bekknum í upphafi leiktíðarinnar á Englandi. „Ég þarf að halda öllum möguleikum opnum. Það sem ég hef haldið mig við á mínum ferli er að skipta um félag til að spila leiki," sagði Heaton í viðtali við Daily Mirror. Heaton fór úr axlarlið í leik gegn Crystal Palace fyrir rúmu ári síðan og var frá það sem eftir var síðustu leiktíðar. Nick Pope tók stöðu hans í markinu, sló í gegn og var meðal annars valinn leikmaður ársins hjá Burnley að tímabilinu loknu. „Hann var réttilega útnefndur leikmaður tímabilsins. Hann komst í landsliðshóp Englands, þannig virkar fótboltinn," bætti Heaton við en hann var sjálfur búinn að vinna sér sæti í landsliðinu og lék meðal annars með liðinu gegn Frökkum á Stade de France í æfingaleik. Pope síðan einnig úr axlarlið í æfingaleik í júlí var Joe Hart fenginn til liðsins. Hann fékk tækifærið í upphafi leiktíðar og hefur haldið Heaton á bekknum. „Joe var settur í liðið í Evrópudeildinni gegn Basaksehir og hélt sætinu í fyrsta leiknum í deildinni sem var pirrandi fyrir mig." „Ég ætla ekki að ljúga, það var erfitt. Ég þekki Joe vel og ber mikla virðingu fyrir honum en ef ég á að vera hreinskilinn þá bjóst ég við að spila," sagði Heaton og bætti við að það hafi verið erfitt að fylgjast með enska liðinu á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi. „Það var erfitt því þig langar svo mikið að vera með. Á sama tíma ertu auðvitað stuðningsmaður Englands. Ég eyddi tíma með Adam Lallana því við vorum í fríi á sama tíma og við horfðum saman á leiki í Dubai. Líðan okkar var svipuð," en Lallana missti einnig af Heimsmeistaramótinu vegna meiðsla eftir að hafa verið fastamaður í enska liðinu í undankeppninni.
Enski boltinn Mest lesið Mun Guðmundur reisa Holland við? Handbolti Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Fótbolti Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Fótbolti Myndi taka kúlu fyrir Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Sjá meira