Gæti gránað í fjöll á norðaustanverðu landinu síðar í vikunni Birgir Olgeirsson skrifar 12. júní 2018 14:57 Íslendingar hafa séð betra veður í miðjum júní. Vedur.is
Hún er ekki hlýleg veðurspáin fyrir vikuna en verstu spár gera ráð fyrir að það gráni í fjöllum á norðaustanverðu landinu aðfaranótt föstudags, sem er 15. júní. Daníel Þorláksson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir hitastigið bjóða upp á slyddu eða snjókomu aðfaranótt föstudags en það sem gæti bjargað Norðlendingum frá því að horfa upp á gráa fjallstoppa á föstudagsmorgun er að lítil úrkoma sé í spám veðurstofu Íslands, en þó einhver. „Það er ekki tímabært að spá slyddu,“ segir Daníel en bætir við að spálíkönin séu að hóta slyddu líkt og sakir standa. Á morgun má gera ráð fyrir hægri suðvestanátt og skúrum en þurrt að kalla suðaustan- og austantil. Norðan 3-8 og þykknar upp um norðaustanvert landið annað kvöld og fer einnig að rigna austast. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á Suðausturlandi.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ fimmtudag:Norðaustan 8-13 m/s og súld eða rigning um landið norðan- og austanvert, en hægari norðlæg átt og úrkomuminna annars staðar. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á Suðausturlandi.Á föstudag:Norðlæg átt, víða 3-8 m/s. Skýjað en þurrt að kalla norðanlands, en austlægari og dálítil væta um sunnanvert landið. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast syðst.Á laugardag:Hæg suðlæg eða breytilegar átt og væta í flestum landshlutum, en heldur hlýnandi veður.Á sunnudag (lýðveldisdagurinn):Suðaustanátt og rigning með köflum sunnan- og vestanlands en skýjað og þurrt norðaustantil. Hiti 8 til 13 stig.Á mánudag:Norðlæg eða breytileg átt og rigning eða súld með köflum í flestum landshlutum. Kólnar heldur.
Veður Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Erlent Fleiri fréttir Beðið í nærri tvö ár eftir gögnum um Airbus og Reykjavíkurflugvöll Kom leiðinlega á óvart að vélin væri sérsmíði Vara við umfangsmiklum netsvikum í nafni lögreglunnar Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Einn um borð þegar eldur kviknaði í fiskibát Samtímis bæjarstjóri og þingmaður Hafa engar upplýsingar um Sindra Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Sjá meira