Ólafur Kristjáns: Við erum í góðri stöðu Einar Sigurvinsson skrifar 2. ágúst 2018 07:00 „
Þetta er gott lið, þeir eru góðir með boltann og vel skipulagðir. Úrslitin í fyrri leiknum gefa okkur von en við þurfum að eiga virkilega góðan leik á morgun til þess að fara í gegnum þá,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálfari FH, þegar Arnar Björnsson ræddi við hann í gær. Í kvöld mætir FH ísraelska liðinu Hapoel Haifa í seinni viðureign liðanna í forkeppni Evrópudeildarinnar. Fyrri leiknum í Ísrael lauk 1-1 þar sem Eddi Gomes skoraði gott útivallarmark fyrir FH. „Þeir munu að sjálfsögðu herja á okkur. Þeir voru súrir með niðurstöðuna í síðasta leik.“ Ólafur segir að verkefnið verði langt frá því að vera auðvelt. Haifa liðið muni liggja aftarlega og gera út á skyndisóknir. „Þeir eru með framherja sem kom inn á í fyrri leiknum, stór og sterkur. Hann gæti ógnað okkur í fyrirgjöfum og slíku, en við erum með ráð við því. Þetta er bara heilsteypt lið og þeir voru erfiðir.“ Þrátt fyrir að vera ljóst að um erfitt verkefni sé að ræða telur Ólafur möguleika FH-inga til að komast áfram nokkur góða. „Við erum í góðri stöðu. Við komum okkur í góða stöðu með því að skora þetta útivallarmark og settum þetta í 50/50 einvígi. Við ætlum að láta vel á það reyna að komast áfram,“ sagði Ólafur að lokum en viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan. Leikur FH og Hapoel Haifa hefst klukkan 19:15 í kvöld og hefst útsending á Stöð 2 Sport klukkan 19:00.
Íslenski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn Sport Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira