Haustspá Siggu Kling – Fiskurinn: Hentu í burtu leiðinlegum hugsunum 7. september 2018 09:00
Elsku Fiskurinn minn, það er svo mikilvægt að þú hugsir bara eins og býfluga, en hún veit ekki að samkvæmt vísindalegum staðreyndum á hún alls ekki að geta flogið, en hún flýgur samt því að engin hefur hvíslað þessu að henni! Taktu þér þetta til fyrirmyndar því allt er hægt en ef einhver segir við mann að maður geti ekki þetta eða hitt þá festist það í frumunum og þú getur sjálfur verið þér allra verstur með þetta, ég get ekki þetta og ég er ekki nógu góður í hinu eða þessu – það er bölvuð vitleysa, þú hefur svo sterkan vilja og vilji er allt sem þarf. Sjáðu það skýrt fyrir þér hvað þú vilt þá færðu þránna til að framkvæma og það sem þú sérð fyrir þér byrjar að gerast. Þú ert það sem þú hugsar svo að hentu í burtu leiðinlegu hugsunum þínum rétt eins og þegar þú hreinsar til í tölvunni þinni og „delete, delete, delete“.Einu sinni sagði Solla á Gló við mig þú ert það sem að þú borðar, þá svaraði ég henni ég er þá súkkulaði en þú ert þá blómkál, svo hlógum við. Það er svo gott að hlægja að vitleysunni og ef að þú horfir til baka þá áttu mörg tímabil sem að þú varst hreinlega að deyja úr stressi, og sást ekkert nema svart, en núna getur þú hlegið að mörgum þessum vitleysum. Hláturinn og grínið, það er að gera grín að sjálfum sér og atburðum sem þér þóttu ömurleg upplifun styrkir þig svo sannarlega, svo leyfðu engum stoppa þig í því að vera einlægur, láttu allt flakka sem þig langar að segja, en settu þennan dásamlega húmor inn í orðin þín. Þú skerð þig afskaplega mikið úr og ef það er eitthvað stjörnumerki sem ég get svo sannarlega þekkt út frá hinum þá ert það þú minn kæri Fiskur. Þú ert svo hnarreistur og spennandi að manni langar virkilega að kynnast þér betur, gefðu fleirum aðgang að þér, hleyptu nýjum vinum inn í líf þitt, og gerðu eitthvað nýtt í hverri viku sem ögrar þér og þá finnurðu hvernig þú sjálfur breytist til hins betra og upplifir hvernig lífið verður tvöfalt skemmtilegra næstu mánuði. Það er nýbúið að vera fullt tungl í þínu merki og þess vegna verða ótrúlegustu óskir að veruleika, hafðu fjölbreytta sýn á því sem lífið gæti boðið þér. Því þú mátt ekki detta í þá gryfju að þú haldir að eina leiðin til þess að bjarga þér sé að vinna í Lottó, því þú lærir nefnilega að sigra með því að tapa. Svo láttu það að tapa ekkert hafa áhrif á þig því að þú ert á hárréttri leið að dásamlegri framtíð. Hugsaðu frekar að eins og landsliðið okkar sem hefði ekki lært að sigra ef það hefði ekki haft mörg hundruð tapaða leiki á bakinu. Svo að elsku Fiskur vendu þig á að fagna sigrum í lífi þínum hvort sem þeir eru litlir eða stórir, því að eftir því sem þú fagnar meira því meira færðu. Þú hefur ástina í hendi þér í hvaða mynd sem þú telur að hún sé, en ef það er búið að vera mikið af erfiðleikum í ástarlífinu, þá er komin tími til að breyta og breytingar eru í stjörnunum þínum sem að gefa þér möguleika á að snúa öllu við á örskotsstundu.Frægir Fiskar: Elísabet Ásberg listamaður, Beggi hans Pacasar, Baltasar Kormákur leikstjóri, Díana Ómel fjöllistakona, Árni Johnsen, fyrrverandi þingmaður, Albert Einstein, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, Vigdís Hauksdóttir þingkona, Ilmur Kristjánsdóttir leikkona, Svavar Örn engill, Páll Óskar poppstjarna, Katla Sign og Baby Kling, Lína Rut listaperla, Nanna Lovísa dýranuddari, Höskuldur Kári Schram fréttamaður.
Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Fleiri fréttir Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Sjá meira