Segir tilfinningar eldmóð allra Kristín Ýr Gunnarsdóttir og Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifa 28. september 2018 21:45
Atferlisfræðingur, sem segir tilfinningar eldmóð allra, telur fyrirtæki geta náð betri árangri á sínu sviði sé sérstaklega gætt að því að ræða tilfinningaleg mál sem koma upp í vinnunni. Starfsfólk þurfi rými til slíkra samtala, úrvinnslu sinna mála og aðstoð til að festast ekki í vondri líðan. Það sé ábyrgð vinnustaðarins að fólki líði vel, það sé ekki bara þeirra persónulegu mál eftir vinnutíma. Tilfinningar er eitt af því sem gerir okkur mannleg en eru ekkert endilega velkomnar með okkur á vinnustaðinn. Phill Willcow atferlisfræðingur segir hins vegar að hægt sé að koma í veg fyrir kulnun í starfi hjá mörgum ef við opnum á samtal um tilfinningar á vinnustaðnum. „Ef það er tímalína þá endast tilfinningar í augnablik, nokkrar sekúndur eða mínútur. Kulnun er miklu meira lamandi. Það sem gerist er að einstakar tilfinningar hlaðast upp og mynda þessa kulnunartilfinningu. Það sem ég mæli með er að við grípum snemma inn í. Það er snemmbúið inngrip og ef við getum fengið fólk til að tala um hvernig því líður þá kemur ekki að því að fólk kulni eða það þarf að kljást við geðræn vandamál eins og kvíða eða þunglyndi,“ segir Phill Willcow atferlisfræðingur. Phill hélt fyrirlestur á mannauðsdegi í Hörpu en hann rekur ráðgjafarþjónustu í London sem sérhæfir sig í að hjálpa fyrirtækjum að bæta samskipti og nýta tilfinningar mannauðsins til að styrkja fyrirtækið enn frekar. Hann segir fólk yfirleitt óttast að ræða tilfinningar við yfirmann sinn því það gæti sýnt of mikinn veikleika. „Tilfinningar stjórna hegðun. Tilfinningar gefa okkur orku til að gera hluti og ef við erum óánægð með eitthvað sem er að gerast, annað hvort varðandi viðskiptavini eða eitthvað sem á sér stað á vinnustaðnum þá þurfum við að gera eitthvað við þessa orku og ef við getum notað hana á uppbyggjandi hátt til að byggja upp sambönd og samstarf þá er það gagnlegt fyrir vinnustaðinn. Ef við notum hana á skaðlegan hátt þannig að hún brjóti niður sambönd og samstarf þá er það slæmt fyrir vinnustaðinn,“ segir Phill Willcow.
Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Fleiri fréttir Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Sjá meira