Innlent

Heiðruðu fjölþjóðlegan hóp nýdoktora frá HÍ

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Háskóla Íslands heiðraði sextíu og þrjá nýdoktora á laugardaginn.
Háskóla Íslands heiðraði sextíu og þrjá nýdoktora á laugardaginn. Háskóli Íslands
Sextíu og þrír doktorar sem brautskráðust frá Háskóla Íslands á síðasta ári voru heiðraðir við hátíðlega athöfn á laugardaginn. Doktorsnemar frá öllum fimm fræðasviðum tóku þar við gullmerki Háskóla Íslands að viðstöddum Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands.

Þetta er í áttunda sinn sem háskólinn heiðrar nýdoktora með þessum hætti, en í hópi brautskráðra að þessu sinni voru 24 karlar og 39 konur. Af heildarfjöldanum eru 44 prósent með erlent ríkisfang. Sá hópur kemur víða að, samkvæmt upplýsingum frá Háskóla Íslands, eða frá 19 löndum Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku.

„Við minnumst þess nú í ár að 100 ár eru liðin frá því Ísland varð fullvalda ríki, 1918. Á þeim tímamótum er einnig vert að minnast þess að árið 1918 voru liðin sjö ár frá því Íslendingar stofnuðu háskóla, 1911. Stofnun Háskóla Íslands er eitt skýrasta dæmið um þá bjartsýni og menntunarhug sem ríkti meðal þjóðarinnar í upphafi nýrrar aldar,“ sagði Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, í ávarpi sínu.

Um þessar mundir stunda um 600 manns doktorsnám við Háskóla Íslands. Alls munu 60 nemar ljúka doktorsprófi á árinu 2018 og verður heildarfjöldi doktora sem brautskráðst hafa frá Háskóla Íslands frá upphafi á sjöunda hundrað í loks árs.

„Fjöldi doktorsnema við Háskóla Íslands styrkir ótvírætt stöðu hans sem alþjóðlega viðurkennds rannsóknarháskóla. Um leið gerir það skólanum kleift að sinna hlutverki sínu sem æðstu menntastofnunar þjóðarinnar. Öflugur rannsóknarháskóli er frumskilyrði þess að Ísland verði samkeppnisfært í vísindum, nýsköpun og atvinnuþróun, en grunnrannsóknir og góð og fjölbreytt menntun eru jafnan talin ein helsta forsenda hagvaxtar og aukinnar velsældar,“ sagði Jón Atli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×