Próflaus og undir áhrifum flæktust þau í eina umfangsmestu lögregluaðgerð Danmerkur Sylvía Hall skrifar 30. september 2018 11:03 Lögreglan stöðvaði alla umferð til og frá Sjálandi í gær vegna leitarinnar. Vísir/EPA
Ungur maður varð óvart miðpunktur stórrar lögregluaðgerðar á Sjálandi á föstudag eftir að lögregla leitaði Volvo bifreiðar sem hann var farþegi í.Sjá einnig: Mögulega „óheppnustu“ glæpamenn Danmerkur Lögreglan í Kaupmannahöfn lýsti eftir svörtum Volvo V90 í tengslum við rannsókn á alvarlegum hótunum, en bíllinn hafði sést nærri staðnum þar sem hótanirnar áttu sér stað. Maðurinn, sem er tæplega 20 ára gamall, flúði á bílnum ásamt öðrum farþegum. Lögmaður drengsins segir í samtali við DR að drengurinn hafi ásamt öðrum farþegum reykt kannabis þann daginn og voru þau öll próflaus. Drengurinn hafði áður komist í kast við lögin og flúði vettvang til þess að komast hjá því að lenda í því sama aftur. Fólkið skildi bifreiðina eftir á milli Holbæk og Roskilde og fór drengurinn í felur þar sem hann var enn í gærkvöld. Lögregla hefur ekki enn náð að hafa hendur í hári drengsins. Ástæðuna segir lögmaðurinn vera hræðslu hans við lögreglumenn og það sé skiljanlegt þegar um er að ræða lögreglumenn með vélbyssur. Þá segir lögmaðurinn drenginn hafa gert sér grein fyrir því að lögregla hafi leitað að bílnum en það hafi komið honum verulega á óvart að leitin hafi verið svo umfangsmikil. Hann hafi lesið frétt Berlingske Tidende um málið en áttaði sig ekki á að fréttin fjallaði um það hann sjálfan.
Norðurlönd Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira