Leikmaður FH í dag skoraði í síðasta bikarsigrinum á Stjörnunni fyrir 17 árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2018 16:30 Atli Viðar Björnsson. Vísir/Stefán
Stjarnan og FH mætast í kvöld í undanúrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta og er von á mikilli baráttu á milli þessara nágranna og erkifjenda síðustu ára. Leikurinn hefst klukkan 19.15 á Samsung vellinum í Garðabæ og er einnig sýndur beint á Stöð 2 Sport. Stjarnan vann síðasta bikarleik félaganna fyrir fimm árum en það eru liðin meira en sautján ár síðan að FH sló Stjörnuna síðast út úr bikarnum. Síðasti bikarsigur FH á Stjörnunni kom í sextán liða úrslitum 2001 en sá leikur fór fram á þá grasvelli Stjörnunnar í Garðabænum. FH vann leikinn 2-0. Atli Viðar Björnsson skoraði fyrra mark FH í leiknum en hann er enn að spila með Hafnarfjarðarliðinu. Atli Viðar kom FH í 1-0 strax á fjórðu mínútu leiksins en Jóhann G. Möller skoraði seinna markið á 58. mínútu. Atli Viðar var þarna 21 árs og á sínu fyrsta tímabilið með FH. Hann er núna 38 ára gamall og á sínu sautjánda tímabili í Kaplakrikanum. Atli Viðar hefur spilað með FH öll tímabil nema 2007 þegar hann var í láni hjá Fjölni. Rúnar Páll Sigmundsson, núverandi þjálfari Stjörnuliðsins, var nálægt því að jafna metin áður en FH komst í 2-0. Hann skallaði þá naumlega framhjá í upphafi seinni hálfleiks. Annar leikmaður FH í dag spilaði líka í þessum leik en það er fyrirliðinn Davíð Þór Viðarsson sem þá var aðeins sautján ára gamall. Rúnar Páll Sigmundsson var fyrirliði Stjörnunnar í þessum leik en enginn leikmaður Stjörnunnar í dag tók þátt í honum. FH vann Stjörnuna líka í 2-0 í bikarnum árið eftir en síðustu fjórir bikarleikir félaganna hafa allir verið í sextán liða úrslitunun. Nú mætast þau hins vegar í undanúrslitum.Síðustu bikarleikir Stjörnunnar og FH: 16 liða úrslit 2013: Stjarnan vann 3-1 16 liða úrslit 2001: FH vann 2-0 16 liða úrslit 2001: FH vann 2-0 16 liða úrslit 1999: Stjarnan vann 4-0
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Enski boltinn Fleiri fréttir Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira