Vonast til þess að „geim-herinn“ verði til 2020 Samúel Karl Ólason skrifar 9. ágúst 2018 18:05 Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, ræðir stofnun geim-hers. Vísir/AP
Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag umfangsmikla áætlun ríkisstjórnar Donald Trump, forseta, um að stofna „geim-her“ innan herafla Bandaríkjanna. Geim-her þessum væri ætlað að verja yfirráð Bandaríkjanna í geimnum. Pence kallaði eftir því að þingið, sem þarf að samþykkja stofnun geim-hersins, veitti átta milljörðum dala til verkefnisins á næstu fimm árum. Ef af stofnun geim-hersins verður, yrði það í fyrsta sinn frá 1947, þegar flugherinn var stofnaður, sem Bandaríkin stofna til nýrrar greinar heraflans.Samkvæmt Washington Post er mikil mótstaða innan hernaðaryfirvalda Bandaríkjanna gagnvart þessari hugmynd. Nýi herinn myndi koma verulega niður á flugher Bandaríkjanna og taka yfir mörg málefni sem flugherinn hefur til umsjónar.Jim Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, skrifaði í minnisblað í fyrra að hann væri andsnúinn því að stofna sérstakan geim-her og þá sérstaklega núna þegar herinn er vinna að því að draga úr kostnaði og skriffinnsku. Hann sagði þó fyrr í vikunni að hann studdi stofnun geim-hersins. Til stendur að leggja fram frumvarp um stofnun geimhersins í byrjun næsta árs og vonast er til þess að geimherinn verði kominn á laggirnar árið 2020.Ræða Mike Pence í Pentagon í dag. Í ræðu sinni nefndi Pence sérstaklega Rússa og Kínverja og sagði þá hafa unnið hörðum höndum að því að bæta getu sína í geimnum. Hann vísaði til þess að geta þeirra til að granda gervihnöttum hefði aukist til muna. Gagnrýnendur áætlunar ríkisstjórnarinnar hafa gefið í skyn að henni sé eingöngu ætlað að dæla opinberu fé í vopnaframleiðendur Bandaríkjanna sem hafi stutt dyggilega við bakið á Repúblikönum.
Bandaríkin Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira