Lítilla breytinga að vænta í veðrinu á næstunni Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 1. júlí 2018 08:45 Júnímánuður var frekar daufur að mati veðurfræðinga. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Lítilla breytinga er að vænta á næstunni í veðrinu en hlýnar aftur norðaustantil á morgun eftir skammvinna kólnun og vætu, samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Hins vegar eru spár með óstöðugasta lagi og miklar breytingar á milli keyrslna fyrir daga fjögur til sjö, eitthvað sem er fremur óvenjulegt á þessum árstíma. Við þess háttar aðstæður breytist því spáin mikið og ætti fólk sem er að skoða spár fyrir seinni hluta vikunar að taka þeim með fyrirvara um breytingar.Veðurhorfur á landinu í dag Breytileg átt, 3-8. Þurrt að kalla en dálítil rigning eða súld N- og A-lands í fyrstu, en rofar til þar seinnipartinn. Gengur í SA 5-13 S- og V-lands og fer að rigna í kvöld, en heldur hvassara á Snæfellsnesi. Hiti 7 til 16 stig, svalast á Vestfjörðum og við A-ströndina. Suðvestan 5-13 á morgun. Rigning með köflum um landið V-vert en þurrt austantil. Hiti 8 til 13 stig, en 12 til 20 um landið NA-vert.Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Breytileg átt 3-8. Skýjað með köflum og dálítil væta, einkum norðanlands en léttir til vestanlands og úrkomulítið þar. Kólnar í veðri og hiti 6 til 16 stig, hlýjast sunnan- og suðaustantil. Á miðvikudag: Austan og síðar norðaustan 5-13 m/s, hvassast við SA-ströndina. Skýjað og allvíða dálítil rigning eða skúrir og hiti 8 til 15 stig, en úrkomulítið og svalara á Vestfjörðum. Á fimmtudag: Norðvestlæg átt. Rigning á Norðausturlandi, annars skýjað með köflum en bjartviðri sunnan jökla. Hiti 4 til 15 stig, mildast SA-lands. Á föstudag: Suðlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast A-lands. Á laugardag: Útlit fyrir milda suðlæga átt með dálítilli vætu, einkum sunnantil.
Veður Mest lesið Táningsstúlkan sem lést var að teyma íslenskan hest Erlent Hælisleitandi fór huldu höfði í þrjú ár og fleygði sér svo niður stiga Innlent Fjölskyldan franska sendi ættingjum erfðaskrá frá Íslandi Innlent Diddy sakfelldur í tveimur af fimm ákæruliðum Erlent Segja gengið á birgðirnar og hætta við vopnasendingar til Úkraínu Erlent Játaði fjárdrátt og endurgreiðir samkvæmt samkomulagi Innlent Pilturinn áfrýjar ekki þyngsta mögulega dómi Innlent Hiti á þingi: „Hættið þessu bara“ Innlent Bubbi gerir sögulegan samning um eigin líkindi til allrar framtíðar Innlent „Erum við að kenna börnunum okkar að vinna?“ Innlent Fleiri fréttir Stjórnarandstaða setji ný viðmið á þingi sem ógni lýðræðinu Rúmlega 300 ökumenn sviptir eða sektaðir í dag á Kringlumýrarbraut Telur að allt fari í skrúfuna verði ekki brugðist við Bubbi gerir sögulegan samning um eigin líkindi til allrar framtíðar Ólafur Thors og Bjarni Ben sneru sér við í kaldri gröf Fjölskyldan franska sendi ættingjum erfðaskrá frá Íslandi Ótti um að allt fari í skrúfuna, Bubbi og pattstaða „Jú, jú, þetta er orðið málþóf“ Borgin sé ekki að refsa Grafarvogsbúum Pilturinn áfrýjar ekki þyngsta mögulega dómi Bætur Hugins lækkaðar og máli Vinnslustöðvarinnar vísað frá Samfylkingin í stórsókn á landsbyggðinni „Erum við að kenna börnunum okkar að vinna?“ Bærinn sagði nei við fyrsta kosti lögreglu Þinglok 2026 verði 12. júní „Eftir höfðinu dansa limirnir“ Hvalfjarðargöng opin á ný Gagnrýni Bryndísar á málþóf frá 2019 vekur athygli Skipuð nýr skrifstofustjóri í innviðaráðuneytinu Hiti á þingi: „Hættið þessu bara“ Hafa lokið rannsókn á Samherjamálinu Skildi illa við bálhyttuna og úr varð eldur Kjósa um að sameina Skorradalshrepp við Borgarbyggð Hælisleitandi fór huldu höfði í þrjú ár og fleygði sér svo niður stiga „Úrræðaleysi“ og „lausatök“ sögð einkenna yfirstjórn heilbrigðismála Ríkisendurskoðun gagnrýnir lausatök í heilbrigðismálum „Ég á ekki von á því að það vefjist fyrir ráðherranum“ Árekstur á Kringlumýrarbraut Þingheimur minnist Magnúsar Þórs Vill fá að vita hvers vegna ákvarðanir stofnana eru ekki undirritaðar Sjá meira