Stjörnuspá Siggu Kling – Nautið: Ekki nota þrjóskuna til að stjórna ástvinum þínum 6. júlí 2018 09:00
Elsku hjartans Nautið mitt, það er búið að vera mikið spenna í kringum þig og á köflum finnst þér að þú sért að missa tökin, en það er alls ekki rétt. Og þín óbilandi þrjóska á eftir að hjálpa þér nákvæmlega núna áfram, þú þarft ekkert að hægja hraðann sem er í lífinu þínu, heldur skoða það að lífið er betra en það var fyrir nokkrum mánuðum. Þó að þessi dásamlega þrjóska sem einkennir þig, skaltu alls ekki nota hana til að stjórna ástvinum þínum, þú þarft að læra að sleppa því allir hafa í raun sína vernd og allt mun fara vel, þú þarft bara að trúa því. Þú getur verið að hugsa um það núna hverjir eru vinir þínir, það er enginn mælikvarði á vináttu, hvort fólk sé sífellt að koma eða hringja, heldur er vináttan líkt og veðrið á Íslandi það er ekki hægt að stjórna því en við elskum þegar er sól, svo sýndu því þakklæti að vinir þínir verða til staðar þegar á reynir. Vertu alveg viss hjartað mitt að þú munt skara fram úr í því sem þér finnst mikilvægt og það sem er mikilvægast er það sem gerir þig hamingjusaman og fær þig til að hlakka til hvers augnabliks. Lífið er ferðalag og það er spurning um að njóta ferðalagsins en ekki spá í útkomuna þegar ferðalagið byrjar. Innst inni ertu að spá í hver er tilgangurinn í því sem er að gerast? Tilgangurinn er í raun ævilangt verkefni og þú munt aldrei finna nákvæmlega hver tilgangur þinn er, en ég vil skila því til þín að hann er einfaldlega að hafa gaman nákvæmlega núna, ekki hafa áhyggjur af framtíðinni því hún er ekki til. Þegar þú byrjar að hugsa um hvernig þú ætlar að leysa hin og þessi vandamál upplifirðu þunglyndi í núinu, ég nota það svo oft að smella fingri til að stöðva leiðinlegt flæði. Hamingjan mun ekki banka og segja góðan daginn, var ég ekki pöntuð á þetta heimili, heldur er það endalaus vinna að vera hamingjusamur svo þegar þú vaknar skaltu strax benda sjálfum þér á að vera hamingjusamur. Ég lenti í því í fyrra að vera veik í marga mánuði, og þá var það eina sem ég gat hugsað og beðið um var góð heilsa, svo þakkaðu fyrir það sem þú hefur, því þá færðu meira af því. Þú ert á stórkostlega góðu sumri sem gefur þér margar og góðar gjafir og þú munt ná því sem þú þráir með þrjóskunni. Setningin þín er: Hugrekki og þrjóska, dásamleg útkomaFræg Naut: Aron Einar Gunnarsson fyrirliði íslenska knattspyrnulandsliðsins, Hannes Þór Halldórsson markvörður, Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður, Svali Kaldalóns fjölmiðlamógúll, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, rithöfundur og latikokkur, Ellý Ármanns fjölmiðlakona, Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri, Valtýr Björn Valtýsson íþróttafréttamaður, Ólafur Ragnar Grímsson, Álfheiður Ingadóttir þingkona, Halldór Laxness, rithöfundur og skáld, Rúnar Freyr Gíslason leikari, Garðar Thor Cortes söngvari, Helga Möller söngkona, Katrín Tanja Davíðsdóttir crossfit-meistari, Nanna Bryndís Hilmarsdóttir söngkona, Pétur Jóhann Sigfússon, Addi Exos dj-snillingur, Davíð Rúnar Bjarnason, boxari, Þórunn Pálsdóttir fasteignasali.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Fleiri fréttir Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Sjá meira