Stjörnuspá Siggu Kling – Krabbinn: Þú hefur fengið góða lendingu og stjórn á lífinu 6. júlí 2018 09:00
Elsku Krabbinn minn, lífið þitt er eins og tilfinningaleg hringekja sem þýðir að það er aldrei dauður punktur, þú þarft að ná jafnvægi og hemja þína ástríðufullu orku því þá verður líf þitt beinn og breiður vegur. En núna undanfarið má líkja lífi þínu við vegi á Vestfjörðum sem eru stórhættulegir ef maður fer ekki varlega, tengdu friðinn við þig, sérstaklega í sambandi við þær persónur sem þú ert hræddur við eða eru að gera þér eitthvað, sýndu þeim auðmýkt þó þú viljir það alls ekki. Með því að gera akkúrat það finnurðu að þú hefur fengið góða lendingu og stjórn á lífinu sem að sjálfsögðu þú stjórnar og ert við stýrið á. Það fer þér alls ekki elsku hjartans vinur minn að vera í aftursætinu á bílnum, eða á aftasta bekk hvar sem það er. Flesta heillar þú gjörsamlega upp úr skónum svo nú skaltu gjörsamlega leggja allt þitt af mörkum til að heilla þá sem eru að gera þér lífið erfitt. Í AA samtökunum eru þeir með þessa frábæru setningu að stundum þarf maður að fá lánaða dómgreind því ef maður er pirraður eða reiður missir maður dómgreindarvitið, svo leitaðu álits hjá þeim sem þú treystir í lífinu því það hjálpar þér í öllu því sem er að gerast. En það er alveg á hreinu að þú ert undir verndarvæng yfirnáttúrulegra afla næstu mánuðina, þér finnst kannski eins og allt sé ótrúleg tilviljun, en það sem er að fara gerast í lífinu þínu er alls engin tilviljun. Hins vegar vil ég segja að allt sem þú snertir verður að gulli, svo veraldlega séð þá færðu það sem þú vilt hvort sem það eru peningar eða veraldlegir hlutir. Mundu að halda áfram að gefa því ert svo gjafmildur, því meira sem þú gefur því meira færðu. Ekki brenna þig aftur á því að taka rangar ákvarðanir, heldur hafðu það í huga þínum staðfast að þú færð rétt skilaboð frá góðum sendiboðum sem eru aðrar manneskjur. Orðið engill þýðir sendiboði, svo taktu vel eftir skilaboðunum sem eru komin eða eru að koma til að hjálpa þér. Þú ert á mögnuðum mánuði (afmælismánuði) og fullt tungl í Vatnsbera og það þýðir að þú eigir að hlúa að heimilinu, sjálfum þér og þeim sem þú elskar. Skilaboðin eru: Ást er allt sem þú þarftFrægir Krabbar: Bryndís Schram, Sigga Lorange Ostabúðarskvísa, Auddi Blö, sem við elskum öll, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og dúlla, Ólafur Stefánsson, handboltakappi og heimspekingur, Edda Sif, Sindri Sindrason, Ásdís Halla Bragadóttir, Hjörvar Hafliðason og Lars Lagerbäck landsliðsþjálfari, Davíð hinn góði skóari í Hafnafirði, Stefán Árni Pálsson fréttamaður, Guðni Th. forseti Íslands, Friðbjörn Europartakóngur, Yesmine Olsen, höfundur og framleiðandi, George Michael, Kristófer Helgason, dagskrágerðamaður, Nuno Alexandre Bentin Servo veitingahúsakóngur, Helga Hafsteinsdóttir, hárgreiðsluséní á Akureyri, Íris Björk Tanya frumkvöðull og hönnuður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Ofurfyrirsæta blæs nýju lífi í Life-tímaritið Menning Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Lífið samstarf Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Gengst við dulnefninu en vill samt ekki kannast við það Menning Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Tónlist Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Lífið Fleiri fréttir „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell ADHD-ið geri Jón Gnarr fullkominn fyrir opið samband Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Sjá meira