Líkami Birnu settur í Ölfusá við Óseyrarbrú Aðalheiður Ámundadóttir skrifar 6. júlí 2018 06:00 Thomas Möller Olsen, annar frá hægri, ásamt verjanda sínum, aðstoðarmanni verjanda og túlki við réttarhöldin síðasta haust. Vísir/Halldór Baldursson
Líkami Birnu Brjánsdóttur var settur í Ölfusá, við Óseyrarbrú, þaðan sem hann rak á einni viku upp í fjöru skammt vestan við Selvogsvita, þar sem hann fannst eftir mikla leit 20. janúar 2017. Þetta er niðurstaða dómkvadds haffræðings sem skilað hefur matsskýrslu til Héraðsdóms Reykjavíkur. Það var fyrrverandi verjandi Thomasar Møller Olsen sem fór fram á að dómkvaddur matsmaður yrði fenginn til að meta hvar líklegast væri að líkama Birnu hefði verið komið fyrir í sjó að teknu tilliti til hafstrauma, veðurfars, landslags og fleira. Í rökstuðningi með beiðni verjandans segir að af gögnum málsins hefði Thomas ekki getað ekið nema um 130 km milli kl. 6 og 11 morguninn 14. janúar 2017, en hafi líkama Birnu verið komið fyrir í sjó utan þeirrar vegalengdar megi útiloka sekt Thomasar. Við rannsókn málsins varð aldrei upplýst með öruggum hætti hvað Thomas hafðist að frá kl. 7 til 11 morguninn 14. janúar. Samkvæmt framburði stjórnenda rannsóknarinnar hafi 130 til 150 óútskýrðir kílómetrar verið eknir á bílaleigubíl þeim sem Thomas hafði á leigu.Thomas Möller kann að hafa ekið eftirfarandi leiðir.Í skýrslu lögreglu við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjaness kom fram að ekkert væri haldbært um ferðir ákærða og bílaleigubílsins á umræddu tímabili þessa dags. Út frá þeim upplýsingum sem fyrir lægju um kílómetrastöðu bílaleigubílsins og vegalengdarinnar sem bifreiðinni var ekið á meðan ákærði hafði hana á leigu, væri líklegast að ákærði hefði ekið bílaleigubílnum frá Hafnarfjarðarhöfn, Krísuvíkurleiðina að brúnni yfir Vogsósa og til baka. Sú leið sem lögreglumaðurinn vísaði til er 45 kílómetra löng. Að Óseyrarbrú eru hins vegar 30 kílómetrar Í viðbót sé miðað við Krísuvíkurleiðina. Það eru 150 kílómetrar. Við málflutning um matsbeiðnina gerði verjandi Thomasar athugasemdir við að miðað væri við að líkama Birnu hefði verið komið fyrir á sama stað og hún fannst sjö dögum síðar. Við aðalmeðferðina sagði hann að Óseyrarbrú væri eini staðurinn sem kæmi til greina en væri útilokaður hvað ákærða varðaði. Hann hefði aldrei getað keyrt svo langt miðað við keyrsluna á bílnum umræddan morgun, þrátt fyrir að Krísuvíkurleiðin hefði verið farin væru það 149,8 km. Og þar með útilokað að ákærði hefði verið að verki en ekki mætti gera ráð fyrir því að hún hefði verið meira en 130 kílómetrar. Vísaði hann meðal annars til réttar þess ákærða að vafaatriði ætti að meta honum í hag. Búast má við að matsgerðin verði meðal helstu álitaefna málsins þegar það kemur til Landsréttar í haust.
Birna Brjánsdóttir Birtist í Fréttablaðinu Dómsmál Tengdar fréttir Óhugnanlegar lýsingar réttarmeinafræðings á áverkum Birnu Ákæruvaldið telur að Thomas Möller Olsen hafi veitt Birnu þessa áverka og svo varpað henni í sjó eða vatn þar sem hún drukknaði. 22. ágúst 2017 14:41 Helstu atriðin úr réttarhöldunum yfir Thomasi Möller Öðrum degi aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Thomasi Möller Olsen lauk í Héraðsdómi Reykjaness í gær. 23. ágúst 2017 13:38 Telja sig hafa fundið lík Birnu í fjörunni við Selvogsvita Frá þessu var greint á blaðamannafundi lögreglunnar sem hófst klukkan 17. 22. janúar 2017 17:06 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira
Óhugnanlegar lýsingar réttarmeinafræðings á áverkum Birnu Ákæruvaldið telur að Thomas Möller Olsen hafi veitt Birnu þessa áverka og svo varpað henni í sjó eða vatn þar sem hún drukknaði. 22. ágúst 2017 14:41
Helstu atriðin úr réttarhöldunum yfir Thomasi Möller Öðrum degi aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Thomasi Möller Olsen lauk í Héraðsdómi Reykjaness í gær. 23. ágúst 2017 13:38
Telja sig hafa fundið lík Birnu í fjörunni við Selvogsvita Frá þessu var greint á blaðamannafundi lögreglunnar sem hófst klukkan 17. 22. janúar 2017 17:06