Kúabændum hefur fækkað um 1350 á þrjátíu árum Magnús Hlynur Hreiðarsson og Þórdís Valsdóttir skrifa 13. maí 2018 14:37
Á sama tíma og mjólkurbændum fækkar og fækkar þá hefur mjólkurframleiðsla í landinu aldrei verið eins mikil og um þessar mundir og ekki minnkar hún í sumar þegar kýrnar komast á grænar grundir. Egill Sigurðsson, formaður stjórnar Auðhumlu sem er fyrirtæki í eigu kúabænda, segir að framleiðendum hafi fækkað gríðar mikið á síðustu þrjátíu árum eða svo, en hann var einn af framsögumönnum á aðalfundi landssambands kúabænda sem fór nýlega fram á Selfossi. „Í árslok 1986 voru 1929 framleiðendur að framleiða mjólk. Þeim hefur sem sagt fækkað um 1350 frá áramótum ´86 til ´87 til síðustu áramóta. Þetta hefur gríðarleg áhrif á rekstur afurðarstöðvanna, mjólkursöfnun og slíkt. Mjólkurframleiðslan hefur aukist á móti en þetta er staðreyndin í þessu,“ segir Egill. Auðhumla og Kaupfélag Skagfirðinga taka í dag á móti mjólk frá kúabændum en fyrir þrjátíu árum voru sautján fyrirtæki sem tóku á móti mjólkinni. Egill segir að kúabændum hafi fækkað að meðaltali um 42 til 44 á ári síðustu árin. Verðlagsmál mjólkurvara er eitt af þeim málum sem kúabændur hafa áhyggjur af. „Ég held bara að það kerfi sem við höfum starfað eftir í opinberri verðlagningu á meginhluta mjólkurvara og þar með afurðastöðu og öryggi bænda, er gengið sér algjörlega til húðar. Við getum ekki haft þetta kerfi áfram. Við verðum að finna aðrar leiðir til að verðleggja þessar vörur og við verðum að hafa það inn í iðnaðinum að mögulega geta brugðist við síbreytilegum markaði frá einum tíma til annars og frá einum mánuði til annars,“ segir Egill Sigurðsson formaður stjórnar Auðhumlu.
Mest lesið Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Innlent Vill kvittanir frá framboði Höllu Innlent Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Innlent Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Innlent Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Innlent Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Innlent Börnin eru fundin Innlent Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Innlent Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Innlent Segir árásirnar í Rafah „hræðileg mistök“ Erlent Fleiri fréttir Lögregla rannsakar andlát í Bolungarvík Vill kvittanir frá framboði Höllu Baráttan um Bessastaði gæti orðið gífurlega spennandi Háspennubilun í Breiðholti Gæti haft gríðarlega þýðingu fyrir Ísafjörð Tafir á Miklubraut í sumar vegna framkvæmda Huldumaður bað um skóflu, límband, hanska og kúbein Soffía er nýr skólameistari FSu Forsetakosningar, kjaradeilur og hundrað kílómetra ganga Tveir bílar skullu saman í Kolgrafarfirði Ungmenni kveiktu í skólabókum Einn til viðbótar í gæsluvarðhald en öðrum sleppt Börnin eru fundin Heilablóðfall sjaldgæfur fylgikvilli eftir ósæðarlokuskipti Efling vísar deilu við borgina til sáttasemjara Stefnir í að losunarskuldbindingar náist Andrea Kristín enn dæmd í fangelsi Lending í Nauthólsvík lengi ferðina um korter til tuttugu mínútur Brosandi þótt aftur sé ekið á flugvél Verzlinga Aðalmeðferð í Bátavogsmálinu fer fram í sumar Ástþór eyðir langmestu Kosningaúrslit yfirleitt nálægt niðurstöðum kannana „Þetta er bara eins og að finna gull“ Þyrlulæknar ósáttir og Ísfirðingar fagna heitavatnsfundi Dúxaði í Verzló með tíu í einkunn og ári á undan í skóla Taldir hafa sviðsett árekstur í Hafnarfirði Myndi ekki syrgja brotthvarf neftóbaksins Fluttur með þyrlu vegna vinnuslyss á bóndabæ Flugferð aflýst eftir að þjónustubíll rakst í flugvél Meðhöndlarinn farinn að nudda á Kvíabryggju Sjá meira