Lögreglustjóra gert að bera vitni Jóhann Óli Eiðsson skrifar 13. apríl 2018 06:00 Páley Borgþórsdóttir
Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, þarf að bera vitni í máli Héraðssaksóknara gegn manni sem grunaður er um heimilisofbeldi og ofbeldi gegn barni sínu. Þetta er niðurstaða Landsréttar sem staðfesti með því úrskurð Héraðsdóms Suðurlands. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa veist að eiginkonu sinni í þvottahúsi á heimili sínu skömmu fyrir jól 2016, slegið hana í andlit eða hrint henni þannig að hún féll á borð. Þá er honum gert að sök að hafa í kjölfarið veist að dóttur sinni og meðal annars slegið hana í bringuna. Ákærði vildi fá að leiða Páleyju sem vitni fyrir dóminn en sækjandi lagðist gegn því. Páley var á bakvakt nóttina sem atvikið átti sér stað og mætti á lögreglustöð vegna þess. Í skýrslutöku af henni í mars í fyrra kom fram að hefði maðurinn ekki komið með góðu á lögreglustöð hefði komið til greina að kalla út sérsveitina til að aðstoða við handtöku hans. Til þess kom ekki. Að mati dómara í málinu var ekki útilokað að Páley gæti borið vitni um málsatvik þó að hún hafi ekki komið á heimili mannsins við handtökuna. Var því úrskurðað að henni bæri að gefa vitni.
Birtist í Fréttablaðinu Lögreglumál Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira