Starfsmaður Facebook yfirheyrður í tengslum við Rússarannsóknina Kjartan Kjartansson skrifar 26. janúar 2018 22:45 Facebook birti fjölda auglýsinga fyrir rússneskar áróðurssíður. Fyrirtækið sendi einnig starfsmann sem vann innan starfrænnar deildar framboðs Trump. Vísir/AFP
Að minnsta kosti einn starfsmaður Facebook sem vann með forsetaframboði Donalds Trump hefur verið yfirheyrður í tengslum við rannsókn Roberts Mueller, sérstaks rannsakanda bandaríska dómsmálaráðuneytisins, á því hvort framboðið hafi átt í samráði við rússnesk stjórnvöld.Tímaritið Wired greinir frá þessu og hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni. Facebook sendi Trump-framboðinu starfsmann sem vann með teymi sem sá um herferðir á starfrænum miðlum. Facebook og aðrir samfélagsmiðlar hafa legið undir ámæli fyrir að hafa birt auglýsingar fyrir áróðurssíður frá rússnesku fyrirtæki með tengsl við rússnesk stjórnvöld. Slíkar auglýsingar náðu til um 126.000 bandarískra Facebook-notenda fyrir forsetakosningarnar árið 2016. Vangaveltur hafa verið um að framboð Trump hafi mögulega látið rússneskum útsendurum í té upplýsingar sem hefðu hjálpað þeim að velja hvaða notendur fengu auglýsingar. Facebook hefur sagt að skörunin í því að hverjum auglýsingar Trump-framboðsins og rússnesku útsendaranna beindust hafi verið óveruleg. Fulltrúar fleiri tæknifyrirtækja hafa verið kölluð til viðtals hjá Mueller, þar á meðal greiningarfyrirtækið Cambridge Analytica sem aðstoðaði framboð Trump.
Bandaríkin Donald Trump Rússarannsóknin Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Erlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira