Oddvitaáskorunin: Á brókinni við golfpeysuna Samúel Karl Ólason skrifar 11. maí 2018 11:00 Hjálmar að taka sjálfu.
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2018 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Hjálmar Bogi Hafliðason leiðir lista Framsóknarflokks og félagshyggjufólks í Norðurþingi í sveitarstjórnarkosningunum. B – listi Framsóknarflokks og félagshyggjufólks er skipaður fólki með ólíkan bakgrunn, reynslu, menntun og áhugasvið. Við kynntum framboðslistann okkar nokkuð snemma og höfum saman átt marga fundi til að móta megináherslur okkar og markmið með samtali við íbúa á íbúafundum. Hvernig við viljum gera gott betra? Við leggjum áherslu á forvarnir og lýðheilsu í víðum skilningi. Það þarf að auka afþreyingu. Við viljum skipuleggja og hefja uppbyggingu á skíða- og útivistarsvæði við Reyðarárhnjúk ofan Húsavíkur. Þar opnast algjör paradís. Við viljum lækka álögur á barnafjölskyldur og bjóða upp á heimagreiðslur þannig að foreldrar hafi val um að vera heima með barni sínu eftir að fæðingarorlofi lýkur og til tveggja ára aldurs. Við viljum taka upp samninga við íþrótta- og tómstundafélög og auka í þann málaflokk með langtímamarkmið í huga. Sömuleiðis að stórauka hvatastyrki á sem víðustum grunni til barna og ungmenna, m.a. til íþróttaiðkunar, tónlistarnáms og hverju því sem stuðlar að vellíðan og þroska barna. Við viljum mæta framtíðinni og tæknivæða skólastarf, m.a. með því að hver nemandi frá 4. bekk grunnskóla og upp úr fái spjaldtölvu til afnota við nám. Skoðun allra skiptir máli og við hvetjum þig til að taka afstöðu og setja X við B.Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Fagranesbarðið í hlýjum sunnan andvara á júlíkvöldi þegar sólin hellist yfir sveitina þannig að Vestmannsvatnið hreyfist varla og himbriminn syngur kvöldljóðið.Hvar á Íslandi myndir þú helst vilja búa? (Fyrir utan eigið sveitarfélag) Hef alltaf verið svolítið spenntur fyrir Snæfellsnesinu eftir dvöl þar eitt gott sumar.Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Sjósiginn fiskur með hamsa, kartöflum og remúlaði.Hvaða mat ert þú bestu/ur að elda? Núðlurétt með fullt af grænmeti og ávöxtum.Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? Það er Gullvagnin, tónleikaútgáfa með Björgvini Halldórs, það klikkar aldrei, aldrei. Það fara allir í rífandi stemningu þegar lagið er búið.Hvað er það vandræðalegasta sem komið hefur fyrir þig, sem segja má frá? Ég bý við aðalgötu bæjarins. Ég spila allajafna golf í stuttbuxum. Það var óþægileg tilfinning að ganga yfir götuna, heilsa öllu fólkinu og setjast upp í bíl og fatta að ég var á brókinni við golfpeysuna.Draumaferðalagið? Án síma og tölvu. Annars langar mig í siglingu á Ha Long flóa í Víetnam, liggja ströndinni að gera ekki neitt.Trúir þú á líf eftir dauðann? Mér er alveg sama, ef það gerist þá gerist það.Besti hrekkurinn sem þú hefur gert eða lent í? Fyrsta apríl ár hvert á föður mínum í samvinnu með nemendum mínum.Hundar eða kettir? Hundar.Uppáhalds „guilty pleasure“ bíómynd? Sko, ég er mikill Star Wars aðdáandi, er sjálfur mjög stoltur af því og tengi tilveru mína við Star Wars hvar sem er. Samstarfsfólki mínu og nemendum finnst ég einum of með tilvitnanir, grímur og veggspjöld uppi á vegg og ætti að finnast þetta hallærislegt en sannleikurinn er; það er allt í Star Wars. Try not, Do, Or do not. There is not try.Hvaða leikari ætti að leika þig í bíómynd? Harrison Ford, sem er algjör óskhyggja.Í hvaða Game of Thrones ætt værir þú og af hverju? Stark er einfaldasta svarið.Hefur þú verið tekin/n af lögreglunni? Vegna hraðaaksturs já kemst ekki hjá því að upplýsa það.Uppáhalds tónlistarmaður? John Williams vegna framlags sín til kvikmyndatónlistar.Uppáhalds bókin? Núna, Með lífið að veði og Ég er Malala sem veittu skyndilega innsýn inn í hugarheim og tilveru fólks í Langt-í-burt-istan. Þær komust inn í kvikuna.Uppáhalds föstudagsdrykkur? Tuborg Classic, jökulkaldur úr hálfslíters dós.Uppáhalds þynnkumatur? Kjúklingur og franskar með brúnni sveppasósu.Þegar þú ferð í fríið, sólarströnd eða menning? Menning, hitt gerist að sjálfu sér.Hefur þú pissað í sundlaug? Já, fyrirgefiði.Hvaða lag kemur þér í gírinn? Það fer eftir því í hvaða gír ég vil vera. Annars virkar Blame it on the boggie alltaf.Er eitthvað smávægilegt sem farið hefur í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt laga? Heimasíða sveitarfélagsins, meina; hvar er t.d. sorphirðudagatalið?Á að banna flugelda? Ég varð fyrir ákveðnu áfalli þegar ég var staddur í Þýskalandi yfir áramót og það vantaði eitthvað. Sjálfur hef ég ekki lengur gaman að þessu. En miðað við magn og mengun er þetta auðvita brjálæði.Hvaða landsliðsmaður í knattspyrnu værir þú og af hverju? Ég var sjálfur miðvörður áður en ég komst að því að ég var ekkert sérstaklega góður í fótbolta. Ætli það sé ekki Raggi Sig. Hann er svona ég ef allt hefði farið að óskum föður míns.Oddvitaáskorunin er hluti af kosningaumfjöllun Vísis. Öllum oddvitum á landinu býðst að taka þátt. Áhugasamir oddvitar geta verið í sambandi við samuel@stod2.is. Tekið verður við efni fram að kosningum.
Kosningar 2018 Oddvitaáskorunin Mest lesið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Lífið Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Lífið „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Tíska og hönnun Segir sig frá hlutverkinu vegna óánægju með upprunann Bíó og sjónvarp Dragi úr trúverðugleika Eddunnar og útiloki fagfólk Bíó og sjónvarp Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Lífið Catherine O'Hara er látin Lífið Fleiri fréttir Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Í krabbameinsmeðferð og fæðingarorlofi á sama tíma Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Fréttatía vikunnar: Handboltinn, SA og tvífarar Catherine O'Hara er látin Brotist inn til sjónvarpsstjörnu og fótboltakappa „Ég er femínisti“ Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu Búinn að fullkomna geltið og að drepast í bakinu Fólk velji einföldustu leiðina og útiloki foreldra sína Djammaði með feðgunum Kára og Agli Útskýrir hvers vegna hún eyddi myndum af Meghan og Harry „Konur í jakkafötum í ruglinu er geðveikt fyndið konsept“ Þess vegna ættir þú frekar að fara í partí en borða brokkolí Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Sjá meira