Gul viðvörun og fólki ráðið frá ferðalögum Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. júní 2018 07:20 Kröpp lægð um 100 km norður af Melrakkasléttu gerði sér ferð yfir landið í nótt. VÍSIR/GVA
Ekkert ferðaveður verður á austanverðu landinu í dag en búast má við hvassviðri eða stormi í landshlutanum fram yfir hádegi með snörpum vindhviðum við fjöll, víða yfir 30 m/s en yfir 40 m/s á stöku stað. Þá er fólk er beðið um að huga að lausum munum og sýna varkárni, en tjöld, garðhúsgögn og trampólín geta fokið. Að auki má búast við sandfoki, að því er fram kemur í athugasemd veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Kröpp lægð um 100 km norður af Melrakkasléttu gerði sér ferð yfir landið í nótt. Vegna hennar rigndi og hvessti og hefur vindur mælst víða yfir 20 m/s. Enn á eftir að hvessa um landið norðaustanvert en þá rofar einnig til. Ekki lægir að ráði fyrr en upp úr hádegi og því eru gular viðvarnir í gildi fyrir austurhelming landsins. Hægari vindur er vestantil á landinu, 10-15 m/s, en búast má við rigningu eða súld norðvestantil fram eftir morgni. Skýjað að mestu og víða skúrir sunnanlands og síðdegis á Vesturlandi. Heldur hægari vindur og úrkomuminna í kvöld.Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á þriðjudag: Suðvestan 5-10, skýjað og stöku skúrir, en bjart með köflum norðan- og austanlands. Hiti 8 til 15 stig að deginum, hlýjast á Austurlandi. Á miðvikudag: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, einkum austantil, en dálítil rignig um tíma á Vesturlandi. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Hæg suðlæg átt og bjartviðri, en gengur í suðaustan 8-13 m/s með rigningu sunnan- og vestanlands síðdegis. Hiti 11 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands. Á föstudag: Hæg sunnanátt og víða dálítil væta en úrkomaulítið norðaustantil. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi. Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir vestlægar áttir með rigningu eða súld með köflum um land allt. Hiti 10 til 15 stig.
Veður Mest lesið „Þetta er mikið áfall fyrir okkur fjölskylduna“ Innlent Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Innlent Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Innlent Ari missti af fyrsta fundinum Innlent Steinsofandi þegar drunurnar riðu yfir: „Er þetta kjarnorkusprengja?“ Erlent Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Innlent Fleiri bitnir af hundunum Innlent Nýtt og mikið golfsvæði í Hafnarfirði komið á veg Innlent Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Innlent Fasteignamat lækkar að raunvirði Innlent Fleiri fréttir Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Skjálftahrinan mallar enn Ari missti af fyrsta fundinum Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir lagabreytingu Situr rúma viku á þingi fyrir sumarfrí „Heiður lífs míns að vera borgarstjóri“ Fordæma innbrot í Reykjabú Mun örugglega leita ráða hjá Heiðu „Greiddi smyglurum verulegar upphæðir til að komast á leiðarenda“ Ljósið fékk langtímasamning Ætlar ekki í varaformannsframboð Verði hægt að sækja um skilnað án þess að gefa upp ástæðu Yfir 70 þúsund horfðu á kappræðurnar á Sýn Áttu ekki von á að þurfa að fara með málið fyrir dóm Bein útsending: Lyklaskipti í borginni Sjá meira