Íraksher hefur sókn að Kirkuk Atli Ísleifsson skrifar 13. október 2017 10:06 Mikil spenna er á svæðinu eftir að meirihluta Kúrda greiddi á dögunum atkvæði með sjálfstæði Kúrdistan. Vísir/AFP
Íraksher hefur hafið sókn inn í Kirkuk-hérað. Þetta hefur AFP eftir ónafngreindum írökskum hershöfðingja. „Írakski herinn sækir nú fram til að ná aftur þeim stöðum sem féllu í júní 2014.“ Hryðjuverkasamtökin ISIS náðu yfirráðum á stórum landsvæðum norður og vestur af höfuðborginni Bagdad sumarið 2014, meðal annars í Kirkuk, eftir að hersveitir Íraka flúðu frá borginni undan skyndisókn ISIS. Peshmergasveitum Kúrda tókst síðar að hrekja ISIS-liða frá borginni. Tilkynning hershöfðingjans kom skömmu eftir að greint var frá því að þúsundir kúrdískra hermanna hafi verið sendir til svæða umhverfis Kirkuk, þar mikla olíu er að finna, af ótta við mögulega sókn Írakshers. „Þúsundir þungvopnaðara peshmergahermanna eru nú staðsettir á stöðum í kringum Kirkuk,“ segir Hemin Hawrami, háttsettur ráðgjafi Masoud Barzani, leiðtoga Kúrda, á Twitter. „Markmið þeirra er að verja borgina sama hvað það kostar.“ Mikil spenna er á svæðinu eftir að meirihluta Kúrda greiddi á dögunum atkvæði með sjálfstæði Kúrdistan. Stjórnvöld í Bagdad segja atkvæðagreiðsluna hafa verið ólöglega. Atkvæðagreiðslan fór meðal annars fram í borginni Kirkuk, sem bæði leiðtogar Kúrdar og íröksk yfirvöld gera tilkall til. Haider al-Abadi, forsætisráðherra Íraks, greindi frá því síðast í gær að írakski herinn hafi ekki nein áform um að ráðast á Kúrda. „Við munum ekki nýta her okkar til að ráðast á eigið fólk eða kúrdíska borgara okkar eða aðra.“
Mest lesið Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Innlent Fleiri fréttir Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Sjá meira