Meðal þeirra sem fengu stöðu sakborninga í málinu auk Sveins Gests voru Jón Trausti Lúthersson og bræðurnir Marcin Wieslaw og Rafal Marek Nabakowski.
„Það er verið að kæra þessa ákvörðun héraðssaksóknara og óska eftir því að ríkissaksóknari endurskoði hana,“ segir Þórhallur Haukur Þorvaldsson, hæstaréttarlögmaður og réttargæslumaður ættingja Arnars.

Í kærunni eru færð rök fyrir því að fleiri en Sveinn Gestur hafi gerst sekir um brot sem geti flokkast undir samverknað eða hlutdeild í þeirri líkamsárás sem Sveinn Gestur hefur verið ákærður fyrir og talin er hafa leitt Arnar til dauða. Samkvæmt ákvæðum almennra hegningarlaga er það metið mönnum til refsiþyngingar hafi fleiri en einn framið refsivert brot í sameiningu. Hlutdeildarbrot getur einnig varðað sömu refsingu og aðalbrotið. Hafi hlutdeildin verið smávægileg má þó dæma vægari refsingu en lögð er við aðalbrotinu.
Kæran var lögð fram 28. september síðastliðinn og ríkissaksóknari hefur þrjá mánuði til að taka afstöðu í málinu. Niðurstaða hans getur orðið á þrjá vegu. Hann getur komist að þeirri niðurstöðu að málið hafi ekki verið rannsakað nægilega og fellt ákvörðun héraðssaksóknara úr gildi á þeim forsendum. Hann getur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara og hann getur fellt ákvörðun héraðssaksóknara úr gildi og lagt fyrir hann að gefa út ákæru í málinu.
Sjaldgæft er að hinu síðastnefnda sé beitt en dæmin eru þó til. Í júlí síðastliðnum fól ríkissaksóknari héraðssaksóknara að gefa út ákæru í nauðgunarmáli sem héraðssaksóknari hafði áður fellt niður.