Nýjar áherslur hjá ZO•ON 19. október 2017 10:00 "Tíðin á Íslandi er að breytast. Haustið er langt og við viljum geta notað flíkurnar okkar vel og við fjölbreyttar aðstæður, helst allan ársins hring,“ segir Hulda Karlotta Kristjánsdóttir, hönnuður hjá ZO•ON. MYND/EYÞÓR
Kynning: Nýja vetrarlína ZO•ON byggir á fjölþættri notkun, vönduðum efnum og þægilegum sniðum. Línuna er hægt að nota bæði á götum borgarinnar og í útivist úti í náttúrunni.„Tískan í dag er að breytast fólk notar útivistarfatnað dagsdaglega og blanda saman við annað. Við leggjum áherslu á flíkur með marga notkunarmöguleika, að úlpa sé ekki bara úlpa heldur tvær flíkur í einni eða þrjár. Við höfum verið að færa okkur í þessa átt og í næstu línum ZO•ON verðum við enn meira á þessum nótum,“ segir Hulda Karlotta Kristjánsdóttir en hún hannar útivistarfatnað ZO•ON ásamt Martti Kellokumpu. Nýjar áherslur ZO•ON hefur þróast mikið frá því það var stofnað 1994 og tekið miklum breytingum síðastliðin þrjú ár, að sögn Huldu. Fyrirtækið lagðist í mikla vinnu við að byggja upp vörumerkið. Ramminn var þrengdur og meiri áhersla lögð á fatnað með fjölþætta notkunarmöguleika sem flæðir milli greina. „Útlitið er einnig að taka breytingum, línan er meira „urban“. Þessar nýju áherslu koma fram í sniðum og milduðu litavali en áður einkenndu sterkir litir og miklir kontrastar fatnaðinn frá okkur. Nú erum við meira í jarðlituðum tónum,“ segir Hulda.Sama flíkin allt árið „Tíðin á Íslandi er einnig að breytast. Það er ekki endilega frost og hríð allan veturinn. Haustið er langt og við viljum geta notað flíkurnar okkar vel og við fjölbreyttar aðstæður, helst allan ársins hring. Þetta höfum við í huga við hönnunina,“ útskýrir Hulda. „Við leggjum einnig mikla áherslu á að hægt sé að klæðast flíkunum í lögum, nota til dæmis léttu primaloft- eða dúnjakkana undir skeljarnar og regnkápurnar úr sumarlínunni og þar með erum við komin með flottan haustjakka. Eins má lengja líftíma vetrarflíkanna, taka innra lagið úr úlpunum og nota ysta lagið sem léttari jakka.“Vönduð efni „Útivistarfatnaður krefst þess að það sé virkni í efnunum, svo sem öndun, vatnsheldni og teygjanleiki fyrir þægindi við hreyfingu. Allt vinnur þetta saman hjá ZO•ON, virkni efnanna, litirnir og sniðin svo fatnaðurinn gangi upp bæði sem daglegur klæðnaður og útivistarfatnaður. Fólk lítur ekki út fyrir að vera á leiðinni á fjöll þegar það klæðist göngubuxum frá okkur og þær má auðveldlega nota í vinnuna.“„Útlitið er einnig að taka breytingum, línan er meira „urban“. Þessar nýju áherslur koma fram í sniðum og milduðu litavali.“Barnalína sem endist „Í barnalínu ZO•ON er áhersla lögð á gæðaefni, slitsterk og vatnsheld svo krakkarnir geti leikið sér og velt sér um í öllum aðstæðum. Við viljum að börnin geti nýtt fötin vel, ermarnar má til dæmis lengja um eina stærð svo nota megi flíkina lengur. Með gæðaefnum er líftími flíkurinnar langur og súrt að þurfa að leggja úlpunni bara vegna þess að hún er orðin of lítil. Með því að stækka hana um eina stærð þarf ekki að endurnýja á hverju ári.“Vönduð efni eru í fatnaði ZO•ON.Á markað erlendis Vorum að hefja sölu á vörum okkar í Finnlandi og Balkanlöndunum og höfum fengið góð viðbrögð. Netverslunin okkar hefur gengið vel og markaðssetning erlendis var því næsta skref,“ segir Hulda. „Við förum okkur hægt en höfum ýmis fleiri járn í eldinum. Þetta fer vel af stað.“Jarðlitir einkenna nýju vetrarlínu ZO•ON.Greinin er unnin í samvinnu með ZO•ON, sem rekur þrjár verslanir í Reykjavík; í Bankastræti, Kringlunni og á Nýbýlavegi. ZO•ON vörurnar er einnig að finna á zo-on.is og í verslunum um allt land.
Tíska og hönnun Mest lesið Byrjuðu saman sex árum eftir fyrstu skilaboðin Lífið Ætlar ekki að láta fjarlægja nafn Kleina Lífið Alexandra greifynja breytir nafninu Lífið Forsetaáskorunin: Fraus á fyrsta Ted fyrirlestrinum en fann sig í augum Sally Fields Lífið Nefnir nautin eftir þekktum íslenskum röppurum og Bent er alltaf með eitthvað vesen Lífið Svaraði engu um Affleck Lífið Birnir og Bríet gefa saman út plötu Lífið Segir konur fórna líkama sínum og heilsu á meðgöngu Lífið Rakel María fann draumaprinsinn Lífið Egill mætti með barnabörnin á forsýningu Snertingar Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Átakanleg saga um erfiðar ákvarðanir, sekt og áföll, fegurð og ást, líf og dauða Í sumarform á 6 vikum Sigurviss lið hefja leikinn í Leikið um landið Langar þig að fylgjast með vinsælum húðmeðferðum? Sameinaðu hreyfingu og hlátur í Lyfjugöngunni Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Er hægt að nota of mikið af sólarvörn? Taktu þátt í Ford Fantasy leik Bestu deildar karla Ný vörulína lagar litabletti í húð The House of Beauty fagna sex ára afmæli með látum Taktu þátt í spennandi vorleik á Vísi Fermingargjöf sem lifir um ókomin ár 10 ár af matargleði: Eldum rétt býður í milljón króna ferðalag ILVA tilnefnt til hönnunarverðlauna Bo Bedre Karlmannsnærbuxurnar sem eru að gera allt vitlaust Taktu þátt í skemmtilegum sumarleik! Metum hvort við viljum breyta góðri sögu með sannleika Sjá meira