Ríkið vann dómsmál um kauprétt að bústað í þjóðgarðinum á Þingvöllum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 14. ágúst 2017 09:15 Valhallarstígur 13 sumarið 2015. Húsið var rifið í febrúar. Fréttablaðið/Pjetur
Ríkið mátti kaupa sumarhúsið á Valhallarstíg 13 á Þingvöllum segir Héraðsdómur Reykjavíkur sem hafnaði þar með kröfum Sigurðar H. Garðarsson sem hafði áður fengið samþykkt tilboð í bústaðinn hjá fyrri eigendum. Félagið V86 ehf. keypti bústaðinn á Valhallarstíg 13 sumarið 2007. Á bak við kaupin var annar eigenda V86, Svanur Kristbergsson. Eins og önnur sumarhús í Þingvallaþjóðgarði stendur bústaðurinn á leigulóð í eigu ríkisins. Vegna stefnu Þingvallanefndar um að lóðarleiguréttur sé í höndum einstaklinga en ekki fyrirtækja var leigurétturinn skráður á Svan sjálfan á árinu 2010. Í ágúst 2012 gerði Sigurður H. Garðarsson tilboð í eignina á Valhallarstíg. Hömlur, dótturfélag Landsbankans, var þá afsalshafi hússins sem verðsett var hjá bankanum og samþykkti tilboðið. V86 var tekið til gjaldþrotaskipta í október 2012. Upphófst nú afar flókin atburðarás. Þjóðgarðsvörður sendi forsætisráðuneytinu bréf í febrúar 2014 og lýsti þar vilja Þingvallanefndar til að nýta forkaupsrétt og eignast húsið fyrir þær 19,25 milljónir króna sem Sigurður H. Garðarsson hafði boðið í það. Varð það úr að ríkið keypti húsið og færði í umsjá Þingvallanefndar sem, eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu, ætlaði sér að fjarlægja húsið og opna aðgang fyrir almenning að bakka Þingvallavatns. Sigurður undi ekki þessum málalyktum og stefndi ríkinu, Þingvallanefnd, Svani Kristbergssyni auk skiptastjóra þrotabús V86 fyrir héraðsdóm. Meðal raka Sigurðar var að komið hafi verið langt út fyrir þann 15 daga forkaupsrétt sem Þingvallanefnd hafi í slíkum málum áður en tekin hafi verið ákvörðun um að nýta réttinn og hann því fallinn niður. Þingvallnefnd hafi brotið gróflega reglur um stjórnsýsluhraða og stjórnsýslurétt. Lögmaður ríkisins sagði engar stjórnsýslureglur, hvorki skráðar né óskráðar, hafa verið brotnar. Kaupsamningur Sigurðar hafi fallið niður tveimur mánuðum eftir dagsetningu hans þar sem í samningnum hafi verið fyrirvari um að Þingvallanefnd samþykkti að framselja lóðarréttindin til hans. Það hafi nefndin ekki gert. Undir þetta sjónarmið lögmanns ríkisins tók Héraðsdómur Reykjavíkur og sýknaði ríkið. Sigurður segir að enn hafi ekki verið tekin ákvörðun um hvort dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Hann tjái sig ekki um málið í bili. Þjóðgarðsnefnd lét rífa bústaðinn í febrúar. Í kaupsamningi Sigurðar var þess einmitt getið að húsið væri ónýtt.
Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira