Innlent

Nóg að gera í borginni en rólegt á landsbyggðinni

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í talsvert meiru að snúast í nótt en starfssystkin hennar á landsbyggðinni.

Nær sömu sögu er að segja af verkefnum næturinnar hjá lögreglunni á Akureyri, Ísafirði og Egilsstöðum; tíðindalaust með öllu að frátöldum nokkrum minniháttar útköllum á Akureyri þar sem Ein með öllu fer fram.

Annars hafi ekki þurft að hafa afskipti af drullusokkunum á Mýrarboltanum, ekki frekar en gestum Fljótsdalshéraðs.

Búast má við lista síðar í dag frá lögreglunni í Vestmannaeyjum þar sem hún greinir frá verkefnum næturinnar. Þó mun hún ekki greina frá þeim kynferðisbrotum sem koma upp á hátíðinni eins og áður hefur verið greint frá.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði þó í nógu að snúast í nótt ef marka má dagbókarfærslur hennar.

Tvö heimilisofbeldismál rötuðu inn á borð lögreglunnar í nótt. Einn maður og tvær konur voru handtekin í tengslum við málin.

Lögreglan þurfti að bregðast við tilkynningu um líkamsárás á bar við Laugaveg þar sem menn höfðu ráðist á dyravörð, veitt honum áverka og tekið gleraugun hans. Einn árásarmannanna var enn á vettvangi þegar lögreglan mætti á svæðið og var hann vistaður í fangageymslu. Áverkar dyravarðarins eru taldir minniháttar.

Þá kemur fram að í það minnsta sjö hafi verið handteknir vegna gruns um ölvunarakstur og þá var ökumaður stöðvaður á þriðja tímanum í nótt eftir að hafa ekið yfir á rauðu ljósi á Hverfisgötu. Ökumaðurinn reyndist vera 16 ára og því ökuréttindalaus. Hann er jafnframt grunaður um ölvun við akstur. Tveir farþegar voru í bílnum og sóttu forráðamenn drengsins hann á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Málið hefur verið tilkynnt til Barnaverndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×