Innlent

Guðni og Eliza heimsækja Bláskógabyggð

Atli Ísleifsson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú.
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú. vísir/ernir
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid koma í opinbera heimsókn í Bláskógabyggð á morgun, föstudag, í tilefni af fimmtán ára afmælis sveitarfélagsins.

Forsetahjónin munu fara vítt og breitt um sveitarfélagið og meðal annars koma við á Þingvöllum, Laugarvatni, Laugarrási og Reykholti, að því er fram kemur í tilkynningu frá sveitarfélaginu. Þá munu þau heimsækja Laugarvatnshella og kúabú.

Að neðan má sjá dagskrá heimsóknarinnar:

1. Selbrúnir (rétt við afleggjara að Grafningsvegi), 8:45

Sveitarstjórn, sveitarstjóri og makar taka á móti Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands og frú Elizu Reid á Selbrúnum, Þingvallasveit.

2. Þingvellir, 9:00-9:30

Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður, Vilhjálmur Árnason, formaður Þingvallanefndar og Einar Á. Sæmundsen taka á móti forsetahjónunum við Hakið.

3. Laugarvatnshellar, 9:50-10:10

Smári Stefánsson og Hallbera Gunnarsdóttir taka á móti gestum. Þau segja forsetahjónunum frá því þegar búið var í Laugarvatnshellum en þau hafa endurgert hellana eins og þeir voru þegar búið var í þeim.

4. Laugarvatn, 10:30-11:30

Heimsókn í Héraðsskólann á Laugarvatni og þaðan verður farið í 

5. Hjálmsstaðir, 13:00-13:20

Daníel Pálsson og Ragnhildur Sævarsdóttir bændur á Hjálmsstöðum taka á móti forsetahjónunum og sýna þeim nýtt fjós sem þau hafa byggt upp.

6. Heilsugæslan í Laugarási, 13:50-14:50

Skrifað verður undir samning um heilsueflandi samfélag milli Bláskógabyggðar og Embættis landlæknis. Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra mun mæta og ávarpa samkomuna ásamt forseta Íslands.

7. Friðheimar, 15:00-15:30

Knútur Ármann og Helena Hermundardóttir taka á móti hópnum og segja frá sinni starfsemi og garðyrkju í sveitarfélaginu.

8. Aratunga, 16:00-18:00

Móttaka í Aratungu fyrir íbúa og gesti sveitarfélagsins. Forsetinn mun flytja ávarp. Á dagskránni eru m.a. tónlistaratriði og landsfrægur skemmtikraftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×