Rauð nef skipta máli Sigríður Víðis Jónsdóttir skrifar 9. júní 2017 07:00 Dagur rauða nefsins er í dag! Rauða nefið táknar gleði og hlátur, nokkuð sem ætti að vera stór hluti af lífi allra barna – en er það því miður alltof oft ekki. Með því að setja upp #rauttnef lýsir fólk yfir stuðningi við réttindi barna á heimsvísu og deilir þeirri sannfæringu að öll börn eigi rétt á góðu og hamingjuríku lífi, hvar í heiminum sem þau kunna að hafa fæðst. Með hjálp UNICEF og heimsforeldra hafa ótal börn um allan heim fengið næringu, vernd, menntun og heilsugæslu – fengið tækifæri á bjartari framtíð. Allt starf UNICEF byggist á frjálsum framlögum og því er stuðningur heimsforeldra hjartað í starfseminni. Heimsforeldrar gera UNICEF kleift að bregðast samstundis við þegar neyðarástand brýst út, vera áfram til staðar fyrir börn eftir að kastljós fjölmiðla er farið annað, sinna hjálparstarfi á svæðum sem njóta engrar fjölmiðlaathygli, skipuleggja hjálparstarf til lengri tíma og beita sér á heimsvísu. Á degi rauða nefsins vill UNICEF skemmta fólki og vekja um leið athygli á að heimsforeldrar og UNICEF berjast saman fyrir betri heimi fyrir öll börn. Á hverjum degi sést árangur af þessari baráttu – árangur sem hefur bein áhrif á börn og færir þeim von og betra líf. Dagur rauða nefsins er skemmtun sem skiptir máli. Það er gaman að gefa og hláturinn getur lengt lífið, í bókstaflegri merkingu. Dagurinn nær hámarki með skemmtidagskrá á RÚV í kvöld þar sem grínistar, leikarar, fjölmiðlafólk og tónlistarmenn búa til ógleymanlegt kvöld. Í þættinum koma fram yfir 200 manns, auk þess sem 50 sjálfboðaliðar munu svara í símann í símaveri Vodafone. Ég hvet alla til að fylgjast með, slást í hóp heimsforeldra og njóta kvöldsins. Um leið vil ég þakka öllum þeim fjölmörgu sem þegar eru heimsforeldrar hér á Íslandi. Þetta er fólk út um allt land og á öllum aldri – raunar skilja 98 ár á milli yngsta heimsforeldrisins og þess elsta. Hvergi eru hlutfallslega fleiri heimsforeldrar en hér á Íslandi og það er frábært! Höfundur er upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Sjá meira
Dagur rauða nefsins er í dag! Rauða nefið táknar gleði og hlátur, nokkuð sem ætti að vera stór hluti af lífi allra barna – en er það því miður alltof oft ekki. Með því að setja upp #rauttnef lýsir fólk yfir stuðningi við réttindi barna á heimsvísu og deilir þeirri sannfæringu að öll börn eigi rétt á góðu og hamingjuríku lífi, hvar í heiminum sem þau kunna að hafa fæðst. Með hjálp UNICEF og heimsforeldra hafa ótal börn um allan heim fengið næringu, vernd, menntun og heilsugæslu – fengið tækifæri á bjartari framtíð. Allt starf UNICEF byggist á frjálsum framlögum og því er stuðningur heimsforeldra hjartað í starfseminni. Heimsforeldrar gera UNICEF kleift að bregðast samstundis við þegar neyðarástand brýst út, vera áfram til staðar fyrir börn eftir að kastljós fjölmiðla er farið annað, sinna hjálparstarfi á svæðum sem njóta engrar fjölmiðlaathygli, skipuleggja hjálparstarf til lengri tíma og beita sér á heimsvísu. Á degi rauða nefsins vill UNICEF skemmta fólki og vekja um leið athygli á að heimsforeldrar og UNICEF berjast saman fyrir betri heimi fyrir öll börn. Á hverjum degi sést árangur af þessari baráttu – árangur sem hefur bein áhrif á börn og færir þeim von og betra líf. Dagur rauða nefsins er skemmtun sem skiptir máli. Það er gaman að gefa og hláturinn getur lengt lífið, í bókstaflegri merkingu. Dagurinn nær hámarki með skemmtidagskrá á RÚV í kvöld þar sem grínistar, leikarar, fjölmiðlafólk og tónlistarmenn búa til ógleymanlegt kvöld. Í þættinum koma fram yfir 200 manns, auk þess sem 50 sjálfboðaliðar munu svara í símann í símaveri Vodafone. Ég hvet alla til að fylgjast með, slást í hóp heimsforeldra og njóta kvöldsins. Um leið vil ég þakka öllum þeim fjölmörgu sem þegar eru heimsforeldrar hér á Íslandi. Þetta er fólk út um allt land og á öllum aldri – raunar skilja 98 ár á milli yngsta heimsforeldrisins og þess elsta. Hvergi eru hlutfallslega fleiri heimsforeldrar en hér á Íslandi og það er frábært! Höfundur er upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi.
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar