Segir mikilvægt að vernda unga gesti líkamsræktarstöðva fyrir notkun stera Birgir Olgeirsson skrifar 3. maí 2017 13:15 Birgir Sverrisson, verkefnisstjóri lyfjamála hjá ÍSÍ, segir sjálfstæða lyfjastofnuna hugsanlega verða að veruleika eftir nokkrar vikur. Vísir/Getty „
Hugsanlega á næstu vikum,“ segir Birgir Sverrisson, verkefnisstjóri lyfjamála hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands, spurður hvenær lyfjaeftirlitið verður orðið að sjálfstæðri stofnun.Vísir hefur greint frá því að það standi til að gera lyfjaeftirlitið að sjálfstæðri stofnun. Með því fyrirkomulagi gæti það gert samning við óháðar íþróttagreinar lyfjaprófanir og við líkamsræktarstöðvar um lyfjaprófanir á korthöfum.Sjá einnig: Reebok Fitness og Sporthúsið opin fyrir því að lyfjaprófa korthafa Birgir segir að lyfjaeftirlitið verði að sjálfstæðri stofnun um leið og framkvæmdastjórn ÍSÍ samþykkir breytingu á lögum ÍSÍ um lyfjamál og skipulagsskrá stofnunarinnar er samþykkt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Hann tekur það fram að þegar hann segir að þetta geti hugsanlega gerst á næstu vikum sé það alfarið byggt á hans mati og þarf ekki endilega að verða. Þetta fyrirkomulag tíðkast til dæmis í Danmörku, það er að lyfjaprófa korthafa líkamsræktastöðva, og yrði fyrirkomulagið hér á landi í grunninn að danskri fyrirmynd en útfærslan líklega öðruvísi. Samkomulagið yrði þess eðlis að báðir aðilar myndu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sporna gegn notkun ólöglegra efna í líkamsræktarstöðvum hvað varðar fræðslu, forvarnir og almennt eftirlit. „Þetta er auðvitað margfalt stærra í Danmörku og sveitarfélögin taka þátt í þessum forvörnum ásamt fleiri hagsmunaaðilum. Þannig að útfærslan varðandi fræðslumál og þess háttar verður aldrei eins. Hins vegar fara prófin sjálf eins fram,“ segir Birgir.„Viðkomandi er boðaður í lyfjapróf á staðnum og þarf að skila sýni. Ef um neitun er að ræða þá jafngildir það jákvæðu sýni.“Vísir/GettyAlla jafna farið fram á þvagprufu Spurður hvernig lyfjaprófin muni fara fram á þeim sem stunda líkamsræktarstöðvar, ef af samkomulaginu verður, segir Birgir að alla jafna verði farið fram á þvagprufu. „Blóðprufa er einnig möguleiki. Viðkomandi er boðaður í lyfjapróf á staðnum og þarf að skila sýni. Ef um neitun er að ræða þá jafngildir það jákvæðu sýni.“ Ekki yrði um handhófskennt próf að ræða, heldur yrðu þeir valdir í próf sem eru grunaðir um notkun vefaukandi efna. Hann segir að það muni fara eftir samkomulagi um lyfjapróf þegar hann er spurður hvort prófað verði fyrir fleiru en vefaukandi sterum. „En aðallega er verið að skima fyrir vefaukandi sterum.“Daninn vill fleiri lyfjapróf Spurður hvernig þetta fyrirkomulag hefur gengið í Danmörku segir hann erfitt að meta nákvæmlega hversu skilvirkar forvarnir eru hvað varðar fjölda jákvæðra sýna eftir að kerfið var tekið í gagnið. „Samkvæmt árlegum könnunum í Danmörku er almenn ánægja með hugmyndafræðina meðal forráðamanna stöðvanna. Það sem forráðamenn stöðvanna hafa hins vegar viljað sjá meira af eru fleiri lyfjapróf, meiri sýnileiki og fleiri heimsóknir frá ráðgjöfum lyfjaeftirlitsins þar í landi. Kostnaður við slíkt eftirlit hefur þó verið hindrun fyrir sumar af líkamsræktarstöðvunum en lyfjaeftirlitið hefur í hyggju að finna lausn á því,“ segir Birgir. Hann segir hvert lyfjapróf kosta á bilinu 50 til 70 þúsund krónur en það fari þó oft eftir aðstæðum.Persónuverndarlög krefjast upplýsts samþykkis Velji líkamsræktarstöð að fara í samstarf við sjálfstætt lyfjaeftirlit um lyfjaprófanir þá þurfa korthafar væntanlega að samþykkja skilmála áskriftar að stöðvunum þar sem yrði kveðið á um að það megi lyfjaprófa þá. Nú þegar eru líkamsræktarstöðvarnar Reebok Fitness og World Class með ákvæði í sínum skilmálum sem banna notkun á ólöglegum efnum. Reebok Fitness er með ákvæði um lyfjapróf en ekki World Class.Afla þarf upplýstu samþykki ef framkvæma á lyfjapróf á korthöfum líkamsræktarstöðva.Vísir/GettyÍ lögum um persónuvernd er kveðið á um að nauðsynlegt sé að útvega upplýstu samþykki frá einstaklingum ef á að meðhöndla viðkvæmar persónuupplýsingar um þá. Ef upplýsingarnar eru viðkvæmar þarf að vera alveg skýrt að einstaklingurinn geri sér grein fyrir því og veiti samþykki sitt. Birgir segir að slíkt samþykki verði til staðar samþykki korthafar skilmálana.Mikilvægt að vernda unga gesti Spurður hvers vegna lyfjaeftirlit ÍSÍ telur þörf á að lyfjaprófa iðkendur í líkamsræktarstöðvum segir hann íslenska ríkið undirskriftaraðila að sáttmála mennta-, vísinda- og menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og því skuldbundið til að takmarka aðgengi íþróttamanna að ólöglegum árangursbætandi efnum. „Og íþróttir teygja anga sína inn á líkamsræktarstöðvar. Lyfjamisnotkun er ekki einungis vandamál í íþróttahreyfingunni heldur einnig lýðheilsuvandamál. Það er mikilvægt að efla forvarnir og vernda unga iðkendur stöðvanna.“Mikið fall í Danmörku Árið 2014 féllu 152 af þeim 343 iðkendum líkamsræktarstöðva í Danmörku sem voru boðaðir í lyfjapróf. Þeir sem féllu mældust annaðhvort með gildi sem sýndu fram á notkun vefaukandi stera eða neituðu einfaldlega að gangast undir prófið. Í umfjöllun Metroexpress í Danmörku kom fram að þar í landi stundi 650 þúsund manns líkamsræktarstöðvar sem hafa gengist undir þessa skilmála danska lyfjaeftirlitsins. Korthafar líkamsræktarstöðva í Danmörku sem falla á lyfjaprófi eru settir í tveggja ára bann.Talað er um að stöðvarnar í Danmörku sem lyfjaprófa iðkendur hafi orðið vinsælli því langflestir sem þær stunda nota ekki vefaukandi efni og er illa við að æfa á meðal þeirra sem það gera.Vísir/GettyVísir ræddi við Skúla Skúlason, fyrrverandi formann lyfjaeftirlits ÍSÍ, um málið í apríl síðastliðnum en hann sagði að í Danmörku séu um 80 til 90 prósent stöðva með skilmála um lyfjapróf. Þessi breyting hafi valdið deilum í upphafi og margir haldið því fram að þetta myndi minnka aðsókn í stöðvarnar því að litið yrði á þetta fyrirkomulag sem innrás í einkalíf þeirra sem stunda líkamsræktarstöðva. Skúli sagði að stöðvarnar sem höfðu þetta fyrirkomulag hefðu hins vegar orðið vinsælli, þar sem lang flestir iðkendur nota ekki vefaukandi efni. „Og er meinilla við að hafa 150 kílóa tröll við hliðina á sér sem lætur kannski 40 kílóa handlóð detta á gólfið eftir notkun.“Stuðst við sterkar vísbendingar Hann sagði stöðvarnar ekki boða fólk í lyfjapróf nema sterkar vísbendingar séu um misnotkun. Það sé til að mynda ástæðan fyrir því hvers vegna svo mikið fall í þessum lyfjaprófum í Danmörku. Valið sé vandlega úr og ekki farið í lyfjapróf nema sterkur grunur sé um misnotkun. Steranotkun er alls ekki einkamál þeirra sem það gera að mati Skúla. Hann sagði steraneyslu eiga eftir að verða meira samfélagsvandamál heldur en hingað til því álagið verði mun meira á heilbrigðiskerfið vegna aukaverkana sem munu hrjá þessa neytendur til frambúðar.Margþættar aukaverkanir Ýmsar aukaverkanir hljóstast af steranotkun. Aukaverkanir hjá báðum kynjum geta verið hjarta- og æðasjúkdómar, lifrarbilun, hárlos og skalli, bólur, rifin húð, hrukkur, aukin þyngd og vökvaaukning í líkamanum, sina- og vöðvaskaðar (sinafestingar rifna og vöðvar rifna), aukin hætta á hjartaáfalli, minnkaður vöxtur hjá börnum og unglingum, blóð í þvagi, óreglulegur hjartsláttur, höfuðverkur og ófrjósemi. Hjá körlum geta brjóst stækkað, í einhverjum tilfellum myndast mjólk í brjóstunum, sæðisframleiðsla minnkar, eistu minnka, kynlöngun eykst á meðan lyf er tekið, kynlöngun minnkar þegar dregið er úr notkun lyfsins eða henni hætt, þvaglátsvandamál gera vart við sig og eigin framleiðsla testósteróns minnkar. Líkamleg einkenni hjá konum eru óreglulegar tíðablæðingar, stækkun á sníp, aukin kynlöngun, aukinn skeggvöxtur, skallamyndun, brjóstin minnka, rödd dýpkar (líkt og mútur), ófrjósemi og hætta á fósturskaða við þungun.
Tengdar fréttir Steraæði á Íslandi Læknar ávísa mun meira af sterum en áður, saksóknari sér tengingu við heimilisofbeldismál og eftirlit í líkamsræktarstöðvum er handan við hornið. Sérfræðingur segir stera ekki einkamál þeirra sem þá nota. 12. apríl 2017 11:00 Reebok Fitness og Sporthúsið opin fyrir því að lyfjaprófa korthafa „Og okkur ber skylda til að taka ábyrgð í þessum málum.“ 27. apríl 2017 11:24 Mest lesið Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Erlent Streymdu árásinni í beinni á netinu Erlent „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Innlent Trump tókst að fella Massie Erlent Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Innlent Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Innlent Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Erlent „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Erlent Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Innlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðismenn verði að hætta að vera litlir í sér Vara við því að samgöngumannvirki lendi í einkaeigu Um 250 ábendingar um netbrot í nýja netgátt Umferðarstýring á 1,4 kílómetra kafla við Þingborg í dag „Þá kom upp að þetta gæti verið pólsk eða þýsk sprengja“ Ekkert sem bannar upptökur af lögregluaðgerðum á almannafæri Boeing 757-þotan lifir lengur hjá Loftleiðum Sífellt fleiri telja Íslandsferð ekki þess virði Sviðin rafbyssupíla enn í kirkjugarðinum Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna Sjá meira
Steraæði á Íslandi Læknar ávísa mun meira af sterum en áður, saksóknari sér tengingu við heimilisofbeldismál og eftirlit í líkamsræktarstöðvum er handan við hornið. Sérfræðingur segir stera ekki einkamál þeirra sem þá nota. 12. apríl 2017 11:00
Reebok Fitness og Sporthúsið opin fyrir því að lyfjaprófa korthafa „Og okkur ber skylda til að taka ábyrgð í þessum málum.“ 27. apríl 2017 11:24