Var spurð hvort hún vildi eiga barnið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. mars 2017 17:45 Katrine Lunde í leik á Ólympíuleikunum í Ríó á síðasta ári. vísir/getty
Katrine Lunde, einn besti markvörður heims, segir að ungverska stórliðið Györ hafi sett óeðlilega pressu á hana þegar hún tilkynnti að hún væri barnshafandi sumarið 2014. Þunganir handboltakvenna hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu eftir mjög svo umdeild ummæli danska þjálfarans Jan Pytlick. Pytlick, sem þjálfar kvennalið OB, sagðist á dögunum vera orðinn pirraður á því að þungunum leikmanna hans. Þrír leikmenn OB hafa orðið óléttar á tímabilinu og Pytlick hefur takmarkaðan húmor fyrir því. Ummæli þjálfarans ollu miklu fjaðrafoki og leikmannasamtökin í Danmörku gagnrýndu þau m.a. harkalega. Lunde, sem hefur leikið undir stjórn Þóris Hergeirssonar í norska landsliðinu, hefur nú stigið fram og greint frá samskiptum sínum við stjórnarmenn Györ þegar hún tilkynnti þeim að hún væri ólétt sumarið 2014. Að sögn Lundes var hún spurð hvort hún vildi eiga barnið. „Ég var í áfalli yfir því að þeir skildu spurja slíkrar spurningar, sérstaklega þar sem ég var 34 ára á þessum tíma,“ sagði Lunde í samtali við Dagbladet í Noregi. „Þótt þeir hafi ekki spurt mig beint út hvort ég vildi fara í fóstureyðingu var það í raun það sem þeir báðu mig um. En ég hugsaði ekki um það. Ég þráði að eignast barn,“ bætti Lunde við. Markvörðurinn nýtti sér svo klásúlu í samningi sínum við Györ til að yfirgefa félagið vegna framkomu þess. Lunde, sem leikur núna með Rostov-Don í Rússlandi, fordæmir ummæli Pytlicks um óléttu leikmanna. „Ég hélt við værum lengra komin árið 2017, sérstaklega hér á Norðurlöndunum. Ég varð fyrir vonbrigðum með ummæli hans. Þetta er einkamál sem vinnuveitendur eiga ekki að hlutast til um,“ sagði Lunde.Jan Pytlick nennir ekki fleiri óléttum leikmönnum.vísir/getty
Handbolti Mest lesið Þóra grætur í koddann ef Þorsteinn verður áfram með liðið Fótbolti Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport „Þetta snýst ekki bara um Sveindísi og Karólínu“ Fótbolti Liverpool leggur númerið hans Jota á hilluna að eilífu Fótbolti Sjáðu þáttinn um N1 mótið: Sprungnar vindsængur, lukkuljón og Ronaldo hárgreiðsla Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Jordan Henderson snýr aftur í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Hneig niður tvisvar á risamóti í golfi Golf Tók fjóra daga þegar hún var tíu ára en getur nú unnið fimmta árið í röð Sport Fleiri fréttir Giorgi Dikhaminjia aftur til Íslands Þorsteinn Gauti semur við Sandefjord Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Skoraði yfir sex hundruð mörk á tímabilinu Karlkyns leikmenn félagsins fá líka fæðingarorlof Ráku glænýjan leikmann félagsins fyrir að mæta á tónleika Aron ráðinn til FH Vilja dæma handboltamann í fimm ára bann Hafnaði ágengum Egyptum en er til í að taka við félagsliði Tæplega þriggja áratuga ferli Alexanders lokið Færeyingar unnu bronsið á HM U21 í handbolta Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Færeyingar töpuðu eftir tvíframlengdan leik Forsetabikarinn rann Íslandi úr greipum Ákvæði í samningi Andra tengt brotthvarfi föður hans Norðmenn græddu á því að halda HM í handbolta Kraftaverk Færeyinga: „Þurfum alla leikmenn sem við getum fengið“ Barðist fyrir Viggó við erfiðar aðstæður: „Ég vildi þetta ekki“ Rúnar framlengir og fer í nýtt hlutverk hjá Fram Íslendingar völtuðu yfir Mexíkó á HM Allir hræðist Gísla Þorgeir: „Þekktasta nafnið í handboltaheiminum“ Viktor Gísli kláraði háskólanám með atvinnumennskunni Ein af hetjum Frakka í Laugardalshöllinni látin Færeyingar efstir þrátt fyrir sigur Íslands í síðasta leik Sautján mörk Elmars ekki nóg gegn Færeyjum Gísli þakklátur fjölskyldu sinni: „Minn stærsti mentor í handboltanum og lífinu“ Átti erfitt með að grípa bolta skömmu fyrir sögulega frammistöðu Strákarnir hófu HM á tapi gegn Rúmenum Tárin runnu þegar feðgarnir föðmuðust eftir afrek Gísla í Meistaradeildinni Sjá meira