Frábær vika hjá Elvari varð ennþá betri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. febrúar 2017 15:30 Elvar Már Friðriksson. Mynd/Heimasíða Barry
Er hægt að spila betur en Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson gerði með Barry-háskólanum í bandaríska háskólakörfuboltanum í síðustu viku? Það er í það minnsta ekki á færi allra. Elvar Már var valinn besti varnarmaður vikunnar í Sunshine State Conference en strákurinn fór algjörlega á kostum í tveimur sigurleikjum síns liðs. Það gefur líka enn meiri vídd í hans frábæru frammistöðu að hann skuli fá verðlaunin fyrir besta varnarleikinn. Því ekki er hægt að kvarta mikið yfir sóknarleiknum hjá honum. Elvar Már var með 27 stig og 10 stoðsendingar í fyrri leiknum og 37 stig og 9 stoðsendingar í þeim síðari. 32 stig og 9,5 stoðsendingar að meðaltali í leik og er síðan ofan á það valinn besti varnarmaðurinn í deildinni. Í fyrri leiknum þar sem Barry-liðið vann Florida Southern skólann bætti Elvar við 3 vörðum skotum, fjórum stolnum boltum og fimm varnarfráköstum. Elvar Már kom einni sterklega til greina sem leikmaður vikunnar en sú viðurkenning kom i hlut liðsfélaga hans Adrian Gonzalez. Gonzalez skoraði fyir 30 stig í báðum leikjunum og hitti þá úr 78 prósent skota sinna (25 af 32). Góð leikstjórn Elvars átti eflaust mikinn þátt í því hversu góð skot Gonzalez fékk í leikjunum tveimur. Þetta var síðasti leikur deildarkeppninnar hjá Barry og Elvar Már var með 16,5 stig, 7,8 stoðsendingar 4,0 fráköst og 1,3 stolinn bolta að meðaltali í leik. Með því að gefa 9 stoðsendingar í lokaleiknum þá komst hann yfir 200 stoðsendinga múrinn á þessu tímabili. Elvar er þegar búinn að gefa 204 stoðsendingar á leiktíðinni. Barry byrjar úrslitakeppnina í Sunshine State deildinni annað kvöld þegar liðið mætir Florida Tech.
Körfubolti Mest lesið Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Íslenski boltinn Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira