Sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hættulega líkamsárás gegn fyrrverandi kærustu Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 25. janúar 2017 13:00 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 26 ára gamlan karlmann í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hættulega líkamsárás og eignaspjöll. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 26 ára gamlan karlmann í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hættulega líkamsárás og eignaspjöll gegn fyrrum unnustu sinni. Manninum var gefið að sök að hafa fimmtudaginn 12. Júní 2014 sparkað í líkama konunnar sem stóð við bíl hans og hélt í stýri hennar. Hann hafi tekið hana hálstaki og ýtt henni upp að þaki bílsins og síðan ekið bílnum eftir Ásbraut í Hafnarfirði. Konan var hálf út úr bílnum og dróst með bílnum þar til hann stöðvaði við Haukatorg. Á meðan á akstrinum stóð sparkaði maðurinn í líkama konunnar, sló hana í andlit og líkama og reyndi að losa tak hennar á stýri bifreiðarinnar og loka bilhurðinni á hana. Maðurinn viðurkenndi að hafa látið bílinn renna áfram þar sem konan hélt í stýri hennar en sagðist hafa gert það á svo lítilli ferð að konan hefði hæglega getað losað sig frá bifreiðinni á ferð. Vitni í málinu segja ljóst að konan hefði ekki getað sleppt takinu án þess að bera skaða af. Í dómi segir að manninum hafi ekki getað dulist sú hætta sem fylgdi því og að líklegast hefði konan hlotið meiðsl ef hún hefði fallið í götuna, auk þess sem hún hefði getað lent undir bílnum. Brotið þykir sérstaklega hættulegt vegna þeirrar aðferðar sem hann beitti. Þá var maðurinn einnig ákærður fyrir eignaspjöll með því að hafa eyðilagt iPhone konunnar með því að beygja hann með handafli.Í dómi héraðsdóms segir að maðurinn hafi stofnað konunni í háska, en hún hlaut umtalsverða áverka af árásinni.Lagðist inn á geðdeildÍ málinu liggur fyrir vottorð sérfræðilæknis á slysa- og bráðadeild Landspítalans. Þar kemur fram að konan hafi leitað á deildina að kvöldi 12. Júní 2014. Hún hafi sagst hafa orðið fyrir líkamsárás af hálfu fyrrverandi kærasta sem hafi slegið og sparkað í hana og tekið hana hálstaki. Við skoðun hafi hún verið með klórsár hægra megin á hálsi og marblett fyrir aftan eyra. Þá hafi hún verið með marbletti eftir fingur víðs vegar á handleggjum, þar á meðal stóran marblett á hægri framhandlegg þar sem hafi sést fingraför. Hún var einnig með marbletti á lærum, skrapsár á hnjám og marga misstóra marbletti á leggjum. Í vottorðinu kemur einnig fram að hún hafi fengið áfallahjálp, hún hafi aftur leitað á deildina nokkrum dögum síðar og þá verið í miklu ójafnvægi og óttaslegin. Hún hafi í kjölfarið lagst inn á geðdeild. Í málinu liggur einnig fyrir vottorð sálfræðings við áfallamiðstöð landspítalans þar sem greint er frá að allt viðmót konunnar hafi bent til að hún hafi upplifað mikla ógn, ofsaótta og ótta við að deyja eða slasast alvarlega þegar brotið átti sér stað. Greining hafi sýnt að hún hafi þjáðst af áfallastreituröskun í kjölfar árásarinnar. Fyrir dómi játaði maðurinn að hafa skemmt síma konunnar en neitaði að öðru leyti sök.
Mest lesið Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Innlent Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Innlent Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Innlent Fullkomin lending eftir sögulega ferð Erlent Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Innlent „Arc de Trump“ rísi í Washington Erlent Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Innlent Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Innlent Fleiri fréttir Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Kristrún kynnir planið fyrir sveitarstjórnarkosningarnar Barátta við verðbólgu, eltihrellir og brugðist við breyttri Reynisfjöru Engir glæpir á bak við aukið sírenuvæl í borginni Bæjarfulltrúa í Grindavík misboðið: „Sleppið af okkur klónum“ Gabríel Douane í síbrotagæslu: Einn handtekinna vegna líkamsárásar í mars Bæjarstjóri Kópavogs lýsir yfir sárum vonbrigðum með efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar Börn flytji ekki til Grindavíkur á meðan óvissa varir Mikilvægt að tala saman, líka karlar Sjá meira