Tugir skáta lýsa yfir vantrausti á skátahöfðingja Birgir Olgeirsson skrifar 4. janúar 2017 15:58 Bragi Björnsson er skátahöfðingi Bandalags íslenskra skáta. Mynd/Vísir
Fjörutíu og fimm skátar hafa lýst yfir vantrausti á skátahöfðingjann Braga Björnsson og aðstoðarskátahöfðingjann Fríðu Finnu Sigurðardóttur vegna framgöngu þeirra í eineltismáli innan skátafélagsins Ægisbúa og brottvikningu framkvæmdastjóra Bandalags íslenskra skáta, Hermanni Sigurðssyni. Þessir fjörutíu og fimm skáta lögðu nafn sitt við þessa yfirlýsingu á opnum fundi skáta sem haldinn var í Jötunheimum í Garðabæ 2. janúar síðastliðinn. Fundurinn var fyrst ætlaður foringjum skátafélaga en ákveðið var að opna fundinn öllum skátum. Hann sóttu 15 félagsforingjar af 26 skátafélögum en alls voru þar um 60 manns.Krefjast aukaþings Þeir sem rituðu undir þessa yfirlýsingu hafa jafnframt skorað á stjórnir skátafélaga að krefjast aukaskátaþings nú þegar samkvæmt lögum Bandalags íslenskra skáta þar sem fjallað verður um fyrrgreint vantraust á skátahöfðingjann og aðstoðarskátahöfðingjann. Meirihluti skátafélaga getur farið fram á slíkt aukaþing. Er þess krafist að aukaskátaþingið verði haldið á höfuðborgarsvæðinu eigi síðar en laugardaginn 4. febrúar næstkomandi.Búið að boða alla félagsforingja á fund stjórnar Í kvöld er fyrirhugaður fundur stjórnar Bandalags íslenskra skáta en þau Bragi og Fríður Finna eiga sæti í stjórninni. Stjórnin hefur nú þegar boðað alla foringja skátafélaga á fund 14. janúar næstkomandi þar sem ætlunin er að fara yfir málið með þeim.Uppsögn vakti undran Vísir greindi frá óánægju innan skátahreyfingarinnar vegna uppsagnar framkvæmdastjórans í desember síðastliðnum. Uppsögnin olli undran á meðal skáta þar sem stutt er síðan ráðningarsamningur við Hermann Sigurðsson, framkvæmdastjóra skátahreyfingarinnar, var framlengdur um þrjú og hálft ár. Þá er risaverkefni fyrirhugað innan skátahreyfingarinnar næsta sumar þar sem alþjóðlegt skátamóti, World Scoot Moot, verður haldið hér á landi en þar koma saman 5.000 skátar frá öllum heimshornum. Var það samþykkt af stjórn Bandalags íslenskra skáta að segja Hermanni upp en kallað hefur verið eftir skýringum á þeirri uppsögn innan skátahreyfingarinnar.Framkvæmdastjórinn hafði tekið á eineltismáli Hafði framkvæmdastjórinn nýverið tekið á eineltismáli sem kom upp innan hreyfingarinnar. Bragi Björnsson skátahöfðingi hefur látið hafa eftir sér að ástæða uppsagnarinnar sé sú að komið hafi upp trúnaðarbrestur milli framkvæmdastjóra og stjórnar. Meirihluti stjórnar hafi því komist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að ganga til samninga um starfslok. Bragi sagði jafnframt að eineltismálið tengist ekki uppsögninni en kæran vegna eineltisins fór fyrir stofnun innan Bandalags skáta sem nefnist skátaréttur.
Tengdar fréttir Uppsögn framkvæmdastjóra skekur skátahreyfinguna Trúnaðarbrestur milli framkvæmdastjórans og stjórnar segir skátahöfðingi. 16. desember 2016 15:32 Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Sjá meira
Uppsögn framkvæmdastjóra skekur skátahreyfinguna Trúnaðarbrestur milli framkvæmdastjórans og stjórnar segir skátahöfðingi. 16. desember 2016 15:32