Uppsögn framkvæmdastjóra skekur skátahreyfinguna Birgir Olgeirsson skrifar 16. desember 2016 15:32 Uppsögnin olli undran á meðal skáta þar sem stutt er síðan ráðningarsamningur við Hermann Sigurðsson, framkvæmdastjóra skátahreyfingarinnar, var framlengdur um þrjú og hálft ár. Vísir/Daníel
Framkvæmdastjóra Bandalags íslenskra skáta var sagt upp störfum í vikunni og ríkir nokkur óánægja með það innan skátahreyfingarinnar. Umræða um uppsögnina spratt upp innan Facebook-hóps skáta sem nefnist Skátar á Íslandi. Uppsögnin olli undran á meðal skáta þar sem stutt er síðan ráðningarsamningur við Hermann Sigurðsson, framkvæmdastjóra skátahreyfingarinnar, var framlengdur um þrjú og hálft ár. Þá er risaverkefni fyrirhugað innan skátahreyfingarinnar næsta sumar þar sem alþjóðlegt skátamóti, World Scoot Moot, verður haldið hér á landi en þar koma saman 5.000 skátar frá öllum heimshornum.Bragi Björnsson skátahöfðingi.Var það samþykkt af stjórn Bandalags íslenskra skáta að segja Hermanni upp störfum í vikunni en kallað hefur verið eftir skýringum á þeirri uppsögn innan skátahreyfingarinnar. Hafði framkvæmdastjórinn nýverið tekið á eineltismáli sem kom upp innan hreyfingarinnar. Í samtali við fréttastofu Ríkisútvarpsins segir Bragi Björnsson skátahöfðingi að ástæða uppsagnarinnar sé sú að komið hafi upp trúnaðarbrestur milli framkvæmdastjóra og stjórnar. Meirihluti stjórnar hafi því komist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að ganga til samninga um starfslok. Bragi segir ennfremur að eineltismálið tengist ekki uppsögninni en kæran vegna eineltisins fór fyrir stofnun innan Bandalags Skáta sem nefnist Skátaréttur.
Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Gus sleginn á 6,3 milljarða króna Erlent Fleiri fréttir Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Sjá meira