Nemendur fá að ráða í nýjum skóla 27. maí 2017 07:00 Þorsteinn og Esther í einni af skólastofum Bataskólans á Suðurlandsbraut. vísir/eyþór
Aðstandendur Bataskóla Íslands vonast til þess að nám í skólanum verði í framtíðinni metið til eininga í framhaldsskólum landsins, öðlist sjálfstæði og að fólk á landsbyggðinni fái líka aðgengi að náminu. Það er framtíðarsýnin en skólinn er tilraunaverkefni til þriggja ára á vegum Reykjavíkurborgar og Geðhjálpar. Bataskóli Íslands hefst næsta haust og verður boðið upp á nám fyrir fólk 18 ára og eldra, með geðrænar áskoranir, aðstandendur þess og starfsfólk á heilbrigðis- og velferðarsviði. Skólinn er staðsettur í húsnæði Námsflokka Reykjavíkur við Suðurlandsbraut. „Það kemur enginn hingað inn sem ekki vill það eða hefur áhuga á. Hingað koma nemendur sem vilja ná meiri stjórn á eigin lífi,“ segir Þorsteinn Guðmundsson. Þorsteinn og Esther Ágústsdóttir eru verkefnisstjórar Bataskólans. Esther er grunn- og framhaldsskólakennari að mennt og leggur stund á meistaranám í fullorðinsfræðslu með starfi sínu við Bataskólann. Þorsteinn er landsmönnum kunnur sem leikari og uppistandari. Hann leggur stund á sálfræði við Háskóla Íslands meðfram starfi sínu. „Okkur finnst að nemendur eigi að ráða því hvað er kennt í skólanum,“ segir Þorsteinn og Esther tekur undir. „Námsframboðið á að ráðast af áhuga og þörf nemenda hverju sinni. Það er mjög mikilvægt enda er markmið skólans að valdefla nemendur, auka við lífsgæði þeirra og styrkja sjálfsmyndina,“ nefnir Esther sem dæmi um markmið skólans. „Við erum viðbót við flóruna, segir Þorsteinn. „Við erum ekki að koma í staðinn fyrir aðra góða þjónustu.“ Þau nefna að í skólanum felist dýrmætur ávinningur fyrir samfélagið. „Það er svo dýrmætt að virkja fólk til þátttöku í samfélaginu. Það leiðir að sjálfsögðu af sér minni þörf fyrir aðra þjónustu,“ segir Esther sem hefur sjálf reynslu af geðrænum áskorunum. Dæmi um námskeið í skólanum sem verða kennd næsta haust eru Kvíðastjórnun, Heilsa og vellíðan, Frá þunglyndi til léttara lífs, Sjálfstraust og samskiptahættir og sérstakt námskeið um batahugmyndafræðina. Ítarlegri upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðunni bataskoli.is, benda þau á. „Námskeiðin eru samin og flutt af af sérfræðingi og jafningjafræðara sem er manneskja með reynslu af geðrænum áskorunum. „Hér lærir fólk það sem það vill. Það má til dæmis bara fara úr kennslustofunni ef manni leiðist. Eða ganga um. Hér þarf enginn að sitja og hlýða. Við höfum þetta frjálslegt og eftir þörfum,“ leggur Þorsteinn áherslu á og segir umhverfið munu verða hlýlegt og styðjandi. Fyrirmynd að skólanum á Íslandi er Bataskóli í Nottingham, Nottingham Recovery College, þar sem fyrirkomulagið hefur skilað góðum árangri. Langflestir nemenda eða um 70 prósent halda áfram einhvers konar námi og taka virkan þátt í samfélaginu að námi loknu. „Nemendur setja sér sín markmið og meta sjálfir árangurinn. Þeir hafa sitt að segja um þróun námsins og hvernig því vindur fram. Ég þekki það sjálf að það er mikilvægt að finna sjálfstraustið aftur. Það getur brostið þegar við tökumst á við geðrænar áskoranir. Ég veit það líka af reynslu að það er ekki til staðar í skólakerfinu þessi brú yfir í áframhaldandi nám.“ Esther er umhugað um að íbúar á landsbyggðinni muni í framtíðinni njóta þjónustunnar. „Okkur langar að finna leiðir til þess að íbúar landsbyggðarinnar fari ekki á mis við þjónustuna. Það er framtíðarsýnin og við sjáum fyrir okkur eins konar færanlegt útibú af skólanum á landsbyggðinni.“ Hvað með ungt fólk sem flosnar úr námi vegna geðrænna áskorana? „Skólinn er fyrir átján ára og eldri. Þeir sem hafa náð átján ára aldri geta komið hingað til náms og til þess að ná aftur styrk til að fara í skóla. Auðvitað væri skemmtilegt ef námið væri metið til eininga þannig að það nýtist ungu fólki, hvort sem það hefur flosnað upp frá skóla eða á erfitt með skólagöngu. Þetta er einnig nokkuð sem má skoða í nánustu framtíð,“ segir Þorsteinn. Haldin verður opinn kynningarfundur um skólann á Grand Hóteli, næstkomandi þriðjudag á milli kl. 14.30 og 15.30 sem er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Fimmtudaginn 1. júní verður svo opnað fyrir umsóknir nemenda á heimasíðu skólans, bataskoli.is.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira