Umhverfisstofnun tók ákvörðun um stöðvun starfsemi kísilversins í Helguvík á grundvelli ákvæða laga um hollustuhætti og mengunarvarnir með bréfi til United Silicon hinn 12. apríl síðastliðinn. Fallið var frá áformum um stöðvun rekstrar eftir að United Silicon tilkynnti Umhverfisstofnun að ljósbogaofn verksmiðjunnar yrði ekki ræstur eftir næsta óvænta ofnstopp sem myndi vara í klukkustund eða lengur.
Starfsemin var stöðvuð eftir eldsvoða sem kom upp í verksmiðjunni aðfaranótt þriðjudags. Þann dag sendi Umhverfisstofnun svo nýtt bréf þar sem United Silicon var tilkynnt um stöðvun rekstrar í óákveðinn tíma frá og með morgundeginum nema það berist andmæli sem stofnunin metur gild.
Hátt í fjögur hundruð kvartanir hafa borist frá íbúum í nágrenni við verksmiðjuna frá því að hún var gangsett í nóvember. Íbúar hafa fundið fyrir sviða í augum og hálsi, ertingu í lungum, hausverk, ógleði og kláða í andliti. Talið er að frá verksmiðjunni hafi streymt efni sem geti haft varanleg áhrif á heilsu manna.
Um sextíu starfsmenn vinna í verksmiðjunni en þeir eru flestir skjólstæðingar verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. Störf þeirra eru nú í uppnámi enda óvíst hvenær verksmiðjan hefur starfsemi á ný. Kristján Gunnarsson formaður verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur segir að margir starfsmenn hafi kvartað undan öryggismálum í verksmiðjunni.

Margir starfsmenn verksmiðjunnar hafa haft áhyggjur af öryggismálum inni í verksmiðjunni sjálfri? „Þannig hefur það birst mér. Þeir hafa sagt mér frá þessu í samtölum. Þetta eru ekki bara einhverjir einn eða tveir. Þetta eru nokkrir starfsmenn. Þeir hafa haft áhyggjur af loftgæðum. Þeir hafa haft áhyggjur því þeim finnst öryggismál ekki góð og eru smeykir um líf sitt, eins og þeir orðuðu það. Þeir vilja fá úrbætur og hafa fengið viðbrögð við því. En það gengur mjög hægt,“ segir Kristján.
Kristján segir að bilanir sem hafi orðið í verksmiðjunni séu einnig áhyggjuefni.
„Allar aðstæður og vinnuaðstaða hefur verið meira og minna bráðabirgða. Það læðist að manni sá grunur að þessi verksmiðja hafi farið af stað ófullgerð. Menn hefðu átt að eyða meiri tíma í að gera verksmiðjuna að verksmiðju áður en þeir fóru af stað með hana.“
