Maíspá Siggu Kling - Sporðdrekinn: Þú ert í rosalegri orku til að ná fram óskum þínum 5. maí 2017 09:00
Elsku Sporðdrekinn minn! Þú ert svo athyglisverður að heimurinn er heppinn að eiga þig. En þú þarft að reyna að vera óttalaus og hugrakkur, sem er í raun sama orðið, því þú geislar af svo líkamlegu aðdráttarafli og ert sannkallaður orkubolti! En þú ert aldrei nógu sáttur við útlit þitt, líkama eða þú getur eiginlega alltaf fundið þér eitthvað til foráttu. Þú verður að fatta að þú ert samt engum líkur, því þú ert bæði svo skemmtilegur og svo kryddarðu allt með svo dásamlegum húmor. Þú ert náttúrlega forystusauður og til þess að það gangi vel þarftu að skilja að þú ert númer eitt, tvö og þrjú. En það er eins og þú þarfnist staðfestingar á því hversu hæfileikaríkur og heillandi þú ert. Þú þarft að taka tillit til þín og þinna tilfinningaþarfa og vera sáttur við sjálfan þig, amen! Og amen þýðir að svo mun verða. Þú munt aldrei nokkurn tímann leggja á flótta og þegar þú horfist í augu við erfiðleika muntu sigra þá því þú ert með hjarta úr gulli og það rímar við að þú nennir ekki neinu bulli! Það hlusta allir á það sem þú segir og þú getur átt það til að særa fólk í kringum þig eins einlægur og æðislegur og þú ert, en fólk í kringum þig má líka hafa skoðanir eins og þú og það veistu. Þú hefur yfirburðastöðu í þessu tafli næstu vikur og þú þarft að þora að tefla fram þínu besta. Þú getur ekki látið öllum líka við þig og þér þarf að vera dálítið skítsama. Því ef þú elskar þig og geislar af því þá elskar fólkið þitt þig líka, allavega þeir sem skipta máli og ef þeir skipta ekki máli þá skiptir það heldur engu máli! Þú ert í rosalegri orku til að ná fram óskum þínum, ekki gefa neinn afslátt því að útkoman sem þú færð er vegna þess að þú ert búinn að vera góður við fólk. Fröken Karma er að gefa þér ávísanir og útkomu sem þú átt svo sannarlega skilið vegna velvildar þinnar til annarra. Það er ekki eins og þú hafir beðið um eitthvað, en núna færðu það sem þú átt skilið. Ef þú fengir eitthvert mottó væri það: „Það geta ekki allir verið sexí nema ég,“ dregið af laglínunni hans Palla sem er náttúrulega bestur! Mottó: Lífið er yndislegt. Knús og kossar, Sigga KlingFrægir Sporðdrekar: Birkir Már Sævarsson landsliðsmaður, Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari, Björk, Indira Ghandi, Karl bretaprins, Hillary Clinton, Leonardo DiCaprio, Magnús Scheving, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fleiri fréttir Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Sjá meira