Árásin í Ankara: Davutoglu segir uppreisnarhóp Kúrda bera ábyrgð Atli Ísleifsson skrifar 18. febrúar 2016 09:03 28 manns létust og 61 særðist í árásinni. Vísir/AFP
Ahmet Davutoğlu, forsætisráðherra Tyrklands, segir að kúrdíski uppreisnarhópurinn YPG beri ábyrgð á sprengjuárásinni í Ankara í gær þar sem 28 fórust og 61 særðist. Forsætisráðherrann segir að búið sé að bera kennsl á árásarmennina og hafi níu manns verið handteknir vegna málsins. Talsmenn yfirvalda segir sprengingin hafi orðið eftir að bíl, drekkhlöðnum sprengjuefnum, hafi verið ekið upp að rútum á vegum hersins. Nokkur fórnarlambanna voru óbreyttir borgarar. Útför þeirra sem féllu verður haldin síðar í dag. Fjölmargir hafa fordæmt árásina, þeirra á meðal Bandaríkjastjórn og NATO. Árásin var gerð klukkan 18:30 að staðartíma í gærkvldi í hverfi nærri þinghúsinu og höfuðstöðvum hersins. Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti hefur hótað hefndum vegna árásarinnar og segir hann koma til greina að svara í sömu mynt á hvaða tímapunkti sem er. Tyrkir muni verja hendur sínar. Frelsishreyfing Kúrda, PKK, hefur um árabil barist fyrir sjálfstæði Kúrda og hafa vígamenn innan þeirra raða reglulega ráðist gegn tyrkneskum öryggissveitum. Tyrklandsher hefur að undanförnu fjölgað árásum á stöðvar og liðsmenn YPG, uppreisnarhóps Kúrda, í norðurhluta Sýrlands, sem Tyrklandsstjórn segir vera tengda PKK. Þetta er ekki fyrsta mannskæða árásin í Tyrklandi á síðustu mánuðum, en í janúar féllu tíu manns, aðallega þýskir ferðamenn, í sjálfsvígssprengjuárás í Sultanahmet-hverfinu í Istanbúl. Á annað hundrað manns fórust í tveimur sprengjuárásum í friðargöngu í Ankara í október. Þá féllu rúmlega þrjátíu manns í sjálfsvígssprengjuárás í kúrdíska bænum Suruc, nærri sýrlensku landamærunum, í júlí.
Tengdar fréttir Erdogan hótar hefndum 28 létust í árásinni í gær. 18. febrúar 2016 08:01 Minnst 28 látnir í sprengingu í Ankara Tugir særðust í sprengjuárás sem varð í höfuðborg Tyrklands í kvöld. 17. febrúar 2016 20:14 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Sjá meira
Minnst 28 látnir í sprengingu í Ankara Tugir særðust í sprengjuárás sem varð í höfuðborg Tyrklands í kvöld. 17. febrúar 2016 20:14