Frosti hvergi banginn eftir hótunarbréf í póstinum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. desember 2016 14:35 Frosti Logason heldur úti útvarpsþættinum Harmageddon á X-inu með Mána Péturssyni. Vísir
Útvarpsmanninum Frosta Logasyni brá lítið eitt þegar hann fór í gegnum póstinn sinn í dag. Inn á milli ópnaðra gluggaumslaga leyndist bréf stílað á hann. Í bréfinu var að finna eftirfarandi skilaboð: „Vonandi fer ekki fyrir þér eins og Vilmundi Gylfasyni.“ Ekkert frekar fylgdi bréfinu en stjórnmálamaðurinn Vilmundar Gylfason, sem var dóms-, kirkju og félagsmálaráðherra frá 1979-1980, svipti sig lífi árið 1983 skömmu eftir að hafa unnið kosningasigur með Bandalag Jafnaðarmanna sama ár. Vilmundur var aðeins 34 ára þegar hann lést. Frosti segir að bréfið hafi verið skrifað í apríl síðastliðnum en hann hafi fyrst fundið það núna, innan um óopnaðan gluggapóst sem hann var að skoða í skúffunum sínum. Hann segist ekki munu missa svefn yfir bréfinu. Öllu vanur þegar kemur að hótunum „Nei nei, alls ekki. Ég er ekki að fá svona í fyrsta skipti,“ segir Frosti. Hann fái reglulega bréfapóst frá „trúarnötturum“ sem óski honum þess að brenna í helvíti, eins og Frosti orðar það. Frosti segist þó hafa skoðað hvað hafi verið um að vera í apríl síðastliðnum til að reyna að átta sig á því hvaðan reiðin sé komin sem hafi orðið kveikjan að póstinum. Þetta hafi verið í Panamaskjalavikunni og auk þess hafi hann vitnað í fræga rægu Vilmundar í apríl. Hann sjái samt ekki hvað ætti að hafa farið fyrir brjóstið á einhverjum. Frosti reiknar ekki með því að aðhafast nokkuð. „Þetta er frekar ósmekklegt en ég er ekki að fara að missa svefn yfir þessu.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira