Efst í háhraðaneti og sjónvarpi yfir netið Óli Kristján Ármannsson skrifar 24. júní 2016 05:00 Á tæknisýningu Slush sem fram fór í Tókýó í Japan í síðasta mánuði. Mynd/Slush Media
Á Íslandi eru sem fyrr flestar háhraðainternettengingar miðað við höfðatölu að því er fram kemur í nýrri skýrslu sem Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) og systurstofnanir hennar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum hafa tekið saman. „Þetta er sjöunda árið í röð sem fjarskiptanotkun íbúa Norðurlandanna er borin saman og Eystrasaltslöndin hafa einnig verið með síðustu ár,“ segir í umfjöllun PFS. Fram kemur að á heildina litið sé fjarskiptanotkun mjög lík í löndunum átta og að íbúar þeirra nýti sér sambærilega tækni á svipaðan máta. „Þrátt fyrir það má þó víða sjá mun á notkun og þróun einstakra þátta.“ Fjöldi háhraðainternettenginga hér, þar sem miðað er við auglýstan niðurhalshraða sem svarar 30 megabitum á sekúndu eða meira, er sagður til kominn vegna fjölgunar VDSL og ljósleiðaratenginga hér á landi. Um leið er sagt áberandi að fjölgun áskrifta í farnetum hafi nánast staðið í stað í flestum samanburðarlöndunum. Þó svo að einhverri mettun virðist náð í fjölda farsíma-, eða fartækjaáskrifta þá er í umfjöllun PFS bent á að skýrslan sýni mikla aukningu í gagnanotkun á farnetum í öllum löndunum. „Þar er Ísland í miðjum hópnum, en þessi þróun er alls staðar hröð og stöðug.“ Aukning gagnaflutninga yfir farnet sé langmest í Lettlandi, eða 175 prósenta aukning á árinu 2015. „Ein ástæða þessa er að eitt helsta fjarskiptafyrirtæki landsins býður áskriftir án takmarkana á gagnaflutninga auk þess að bjóða sjónvarpsstreymi um farsímanetið,“ segir í skýrslunni. Í öðrum löndum nam aukning gagnaflutninganna milli 28 og 93 prósent. Hér á landi fór mánaðarlegur gagnaflutningur yfir farsímanetið að jafnaði, miðað við höfðatölu, úr 1,54 gígabætum í 2,56 gígabæt. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. júní 2016
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Játar innbrot í búin Innlent „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira