Í fangelsi eftir að hafa stungið mann í lærið Nadine Guðrún Yaghi skrifar 24. júní 2016 06:00 Maðurinn var fluttur á slysadeild í kjölfar atviksins en konan handtekin og færð í fangaklefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Vísir/Anton Brink
Íslensk kona var handtekin í lok apríl síðastliðins fyrir að hafa stungið karlmann nokkrum sinnum í lærið með hníf. Konan er fædd árið 1983. Árásin átti sér stað í bíl í Breiðholti en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins tengjast konan og maðurinn ekki neitt og hittust í fyrsta skipti kvöldið sem atvikið átti sér stað. Til átaka kom milli þeirra eftir að hann hafði fengið far hjá henni en önnur kona var með í för. Sú kona er ekki sakborningur í málinu. Þá herma heimildir Fréttablaðsins að deilt hafi verið um greiðslu fyrir farið. Maðurinn var fluttur á slysadeild í kjölfar atviksins og konan handtekin og færð í fangaklefa á lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Í dag er hún í fangelsinu á Akureyri. Hún segist muna lítið sem ekkert eftir atvikinu. Samkvæmt heimildum blaðsins er til upptaka af samskiptum mannsins og konunnar áður en hún stakk hann sem verður notuð sem sönnunargagn í málinu. Ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir konunni en hún var á reynslulausn þegar atvikið átti sér stað og því ekki þörf á gæsluvarðhaldsúrskurði. Hún fékk dóm árið 2013 fyrir ítrekaðan ölvunarakstur og fíkniefnalagabrot. Einar Guðberg Jónsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn málsins vera á lokastigi og að málið verði sent á ákærusvið á næstu dögum. Þá mun koma í ljós hvort gefin verði út ákæra. „Málið er í rannsókn og þar af leiðandi get ég ekki tjáð mig um það að svo stöddu,“ segir Steinbergur Finnbogason, verjandi konunnar. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu þann 24. júní
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira