Ójafnt aðgengi barna að Skólaþingi sökum búsetu Sveinn Arnarson skrifar 23. júní 2016 07:00 Skólabörn eiga misgreiðan aðgang að Alþingi. vísir/daníel
Af þeim 39 grunnskólum sem sóttu Skólaþingið síðasta vetur eru aðeins þrír utan suðvesturhornsins. Á Skólaþinginu gefst grunnskólanemendum kostur á að setja sig í spor þingmanna og efla skilning sinn og þekkingu á stjórnskipulagi landsins og lýðræðislegum vinnubrögðum. Skólaþingið er kennsluver Alþingis þar sem tækifæri gefst til að setja sig í spor þingmanna. Með Skólaþinginu er komið til móts við áhuga skóla á því að koma með nemendur í vettvangsferðir á Alþingi. Skólaþinginu er þannig ætlað að auka fjölbreytni í fræðslu um Alþingi. Hins vegar eru engir styrkir veittir til grunnskóla fjarri höfuðborgarsvæðinu til að kynnast störfum löggjafarvaldsins.Brynhildur Pétursdóttir, Björt framtíð Brynhildur Pétursdóttirmynd/sigtryggur ariBrynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar, segir mikilvægt að tryggja að allir hafi jafnan aðgang að þessu námi. „Þarna fer fram mikilvæg fræðsla um Alþingi og mér sýnist aðsóknin mjög góð. Þessi fræðsla er hins vegar illa aðgengileg skólum utan höfuðborgarsvæðisins enda staðsett í miðbæ Reykjavíkur. Auðvitað eiga öll börn rétt á þessari fræðslu óháð búsetu og það verður að tryggja. T.d. mætti styrkja skóla til ferðalagsins, nú, eða gera Skólaþingið að hluta hreyfanlegt.“ Þeir þrír skólar sem sendu nemendur utan SV-hornsins eru grunnskólarnir á Seyðisfirði, Flúðum og á Drangsnesi. Hinir 36 grunnskólarnir eru allir í borginni eða nágrenni hennar. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, segist vera sammála Brynhildi. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. júní 2016
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Sjö ára dómur Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Sjá meira