Obama sendir Repúblikönum tóninn Samúel Karl Ólason skrifar 16. febrúar 2016 23:35 Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. Vísir/EPA
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að tilnefnda „óumdeilanlega hæfan“ einstakling til stöðu hæstaréttardómara. Hann biður öldungadeildarþingmenn Repúblikana að leggja flokkapólitík til hliðar og gefa þeim tilnefnda atkvæði sitt. Miklar deilur hafa verið uppi síðustu daga um hvort að forsetinn eigi yfir höfuð að tilnefna dómara á kosningaári, en dómarinn Antonin Scalia lést á laugardaginn. „Ég ætla mér að vinna vinnuna mína allt til 20. janúar 2017,“ sagði forsetinn fyrr í kvöld. „Ég ætlast til þess að þeir geri það einnig.“ Repúblikanar stjórna öldungadeild þings Bandaríkjanna og hafa þeir sagt að þeir muni ekki staðfesta þann sem Obama tilnefnir. Samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna er það forsetans að tilnefna eftirmann Scalia.Sjá einnig: Obama hyggst tilnefna dómara í næstu viku Samkvæmt AP fréttaveitunni er sjaldgæft að skipa þurfi hæstaréttardómara á kosningaári, þar sem þeir sjálfir forðist að hætta starfi sínu á þeim tíma. Undanfarin ár hafa dómarar sem Repúblikanar hafa tilnefnt verið í meirihluta í Hæstarétti, en nú gæti hlutfallið snúist Demókrötum í vil. Nú þegar hefur Obama tilnefnt tvo hæstaréttardómara.
Mest lesið Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Innlent „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Erlent „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Innlent Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Innlent Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ Erlent Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Innlent Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Innlent Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Innlent Kviknaði í kaffibrennsluofni Innlent Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Erlent Fleiri fréttir Stjórnvöld sögð hylma yfir hvarf hundraða á Miðjarðarhafi Fjögur hundruð fíklar sagðir liggja í valnum eftir árásir Pakistana Segjast hafa sent tvo háttsetta Írani til „dýpstu kima helvítis“ „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Sjá meira