Tónlistarkennarar fá betri laun sem barþjónar en í skólunum Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 29. nóvember 2016 05:00 Við teljum það sanngjarnar kröfur þegar við förum fram á að launabilið sem myndaðist þegar við drógumst aftur úr verði minnkað. Dagrún Hjartardóttir, starfandi formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum
Dagrún Hjartardóttir „Staðan er grafalvarleg. Það er erfitt að manna tónlistarskóla og við höfum heyrt að tónlistarkennarar hafi ráðið sig sem kaffibarþjóna og fengið hærri laun.“ Þetta segir Dagrún Hjartardóttir, starfandi formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, FT. Félagið hefur fundað fjórtán sinnum hjá ríkissáttasemjara frá því að samningar voru lausir 31. október í fyrra. Tónlistarkennarar vilja að launabilið sem myndaðist milli grunnskólakennara og tónlistarkennara árið 2008 verði minnkað. „Við misstum þá úr samningalotu. Grunnskólakennarar sömdu fyrir október það ár en okkar samningar voru ekki lausir fyrr en í nóvember. Við fengum eingreiðslu upp á 20.300 krónur. Við erum í raun að keppa að því að minnka launabilið sem myndaðist þá milli samanburðarhópa,“ segir Dagrún. Hún getur þess að stéttin vilji vera virt að verðleikum og að störfin verðin metin til jafns við störf kennara í annars konar skólum. „Það sem er uppi á borðum festir hins vegar launamuninn í sessi.“ Það er mat tónlistarkennara að þeir séu með allt að 15 prósentum lægri laun en grunnskólakennarar. „Það mætti ætla að launabilið yrði enn meira þegar búið er að semja við grunnskólakennara. Við teljum það sanngjarnar kröfur þegar við förum fram á að launabilið sem myndaðist þegar við drógumst aftur úr verði minnkað,“ leggur Dagrún áherslu á. Hún segir tónlistarkennara bjartsýna. „Þetta er réttlætismál. Það vilja allir sveitarstjórnarmenn hafa tónlistarskóla í sínu héraði. Þetta er sameiginlegt hagsmunamál okkar allra og snýr að lífsgæðum.“ Tónlistarkennarar fóru í verkfall síðla árs 2014 sem stóð í fimm vikur. Nú eru tónlistarkennarar farnir að hugsa sér til hreyfings.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira