Innlent

Fólki fækkar mest á Vestfjörðum

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Fækkunin er mest á Vestfjörðum.
Fækkunin er mest á Vestfjörðum. Fréttablaðið/Rósa Jóhannsdóttir
Íslendingum fjölgaði um eitt prósent í fyrra eða um 3.429 manns og eru orðnir 332.529 talsins. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Fjölgunin er í takt við meðalfólksfjölgun í heiminum sem er 1,2 prósent samkvæmt Alþjóðabankanum.

Fólksfjölgun var á öllum landsvæðum nema þremur. Mest fækkaði á Vestfjörðum. Einnig fækkaði á Norðurlandi vestra og Austurlandi.

Fjölgunin var hlutfallslega mest á Suðurnesjum en þar var 2,2 prósenta fjölgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×