Hornfirðingar heita því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda Atli Ísleifsson skrifar 14. mars 2016 12:24 Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar. Mynd/Landvernd
Björn Ingi Jónsson, bæjarstjóri Hornafjarðar, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar, skrifuðu í síðustu viku undir yfirlýsingu um samdrátt sveitarfélagsins í útlosun mengunarefna. Sveitarfélagið Hornafjörður er þar með fyrsta sveitarfélagið á Íslandi sem hefur þátttöku í loftslagsverkefni Landverndar „Tækifærin liggja í loftinu“. Björn Ingi segir að með yfirlýsingunni ábyrgist sveitarfélagið við að vinna ötullega að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í starfsemi sinni og hvetja jafnframt fyrirtæki og íbúa til hins sama“. Í tilkynningu frá Landvernd segir að fyrir sveitarfélagið Hornafjörð séu loftslagsbreytingar mjög áþreifanlegar. „Jöklar hopa, landris veldur vandamálum við innsiglinguna á Höfn, og súrnun sjávar er líkleg til að hafa neikvæð áhrif á lífríki sjávar í framtíðinni, en sjávarútvegur er stór atvinnuvegur á svæðinu. Á síðustu tveimur og hálfu ári hafa sveitarfélagið og Landvernd unnið í sameiningu að því að mæla útlosun gróðurhúsalofttegunda frá starfsemi sveitarfélagsins sem einingar og setja sveitarfélaginu markmið og vinna aðgerðaáætlun um samdrátt í útlosun. „Verkefnið á sér fyrirmynd hjá dönsku náttúruverndarsamtökunum, en um 75% sveitarfélaga í Danmörku taka þátt í verkefni þeirra. Við stefnum því auðvitað á að fá fleiri sveitarfélög inn í verkefnið og hefur Fljótsdalshérað þegar hafið undirbúningsvinnu“, segir Rannveig Magnúsdóttir verkefnisstjóri hjá Landvernd. Á næstu tveimur árum stefnir Hornafjörður að að minnsta kosti þriggja prósenta samdrætti á ári í útlosun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum, orkunotkun og úrgangi. Stefnt er að frekari samdrætti eftir endurskoðun aðgerðaáætlunar árið 2018.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira